Greint var frá því í dag að lögreglan hefði innsiglað húsnæði í Grímsnesi á mánudag í sameiginlegum aðgerðum Skattsins, ASÍ og heilbrigðiseftirlitsins.
Samkvæmt heimildum fréttastofu var ráðist í umfangsmiklar aðgerðir á farfuglaheimilinu Ljósafossskóla og lúxusgistinguna Golden Circle Dome. Íris Edda Heimisdóttir, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi sagði aðgerðirnar á mánudag hafi gengið vel, ein bygging væri enn innsigluð og rannsókn á málinu ekki lokið.
Sverrir Einar segir í samtali við fréttastofu að von sé á jákvæðum umsögnum næstu daga.
„Öllum gestum var tryggð gisting á öðru hóteli og þeir eru þar í góðu yfirlæti.“
Hann segir ekkert starfsfólk hafa verið flutt í burtu eins og kom fram í fyrri umfjöllun. Ekkert sé hæft í því.