Bandaríkjaher hóf árásir að nýju á Íran í gærkvöld eftir um mánaðarlangt hlé. Íranar svöruðu árásunum og segjast hafa gert árásir á herstöðvar Bandaríkjanna í Jórdaníu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Íranskur ríkisfjölmiðill greindi frá því að eldflaugaárásir Írana hafi valdið bæði manntjóni og eyðileggingu á herstöðinni. Varnarmálaráðuneyti Sameinuðu arabísku furstadæmanna segir það fjarri lagi að árásir Írana hafi valdið tjóni á herstöð Bandaríkjanna þar í gær.
Þetta eru fyrstu árásir milli Bandaríkjanna og Írana síðan seint í júlí. Bandaríkjaher segir að árásirnar hafi verið gerðar til að koma í veg fyrir að Íranar setji ný tundurdufl í Hormússund. Bandaríkjaher hafði áður greint frá því að búið væri að hreinsa upp tundurdufl í Hormússundi.
Þó að dregið hafi úr átökum milli þjóðanna um tíma í sumar hafa Bandaríkin hert enn frekar viðskiptaþvinganir gegn Íran. Diplómatar í Pakistan og Katar hafa reynt að miðla málum milli Írana og Bandaríkjamanna mánuðum saman en án árangurs.
Forseti Írans, Masoud Pezeshkian, tekur þátt í leiðtogafundi í Bishkek í Kyrgistan í dag, þar sem hann mun meðal annars eiga tvíhliða fundi með Vladimir Pútín Rússlandsforseta annars vegar og Xi Jingping, leiðtoga Kína, hins vegar.
Fjármálaráðherra Bandaríkjanna, Scott Bessent, fundar með fjármálaráðherrum G20-ríkjanna í Bandaríkjunum í dag og á morgun, þar sem hann ræðir meðal annars áætlanir sínar um frekari efnahagsþvinganir gagnvart Írönum.