Pólska lögreglan hefur handtekið mann sem er grunaður um að eiga aðild að morði á rússneskum skopmyndateiknara. Frá þessu greinir Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands. Hinn grunaði er með georgískt vegabréf.
Robert Kuzovkov, sem gekk undir listamannsnafninu Semyon Skrepetsky, var skotinn til bana í Póllandi á mánudag. Hann gagnrýndi Vladímír Pútín harðlega í verkum sínum.
Áður höfðu tveir menn frá Belarús verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Þeim hefur verið sleppt.