Íslendingar hafa lengi notað mikið af hefðbundnum svefnlyfjum þótt nokkuð hafi dregið úr notkun þeirra á síðustu árum. Vísbendingar eru hins vegar um að hluti lyfjanotkunar vegna svefnvanda sé að færast yfir í aðra lyfjaflokka, það er lyf sem upphaflega voru þróuð til annarra nota. Þar á meðal er geðrofslyfið quetiapín. Samkvæmt upplýsingum frá Embætti landlæknis fengu um 11.400 einstaklingar lyfið í fyrra, eða næstum tvöfalt fleiri en fyrir tíu árum.
Þegar tekið er tillit til fólksfjölgunar hefur hlutfall notenda aukist um rúmlega helming á tímabilinu. Quetiapín er meðal annars notað við geðklofa og geðhvarfasýki. Lyfið hefur einnig slævandi áhrif og er því stundum notað í mun minni skömmtum við svefnleysi, þótt sú notkun sé ekki meðal samþykktra ábendinga.