Bandaríkin hafa borgað fyrir varnir Evrópu, Japans, Suður-Kóreu og víðar og á sama tíma og ýmsir innviðir eru í molum vestra skilja bandarískir skattgreiðendur ekki hvers vegna þeirra skattpeningar fara í varnir annarra þjóða. Trump er ekki vandamálið, hann er birtingarmynd þess því að sjónarmið einangrunarhyggju og eins konar afturhvarfs til Monroe-kenningarinnar færast mjög í vöxt í Bandaríkjunum. Það hefur þegar haft áhrif varðandi afstöðu Bandaríkjanna til Grænlands og ekki hægt að útiloka að Ísland verði líka undir í því. Gauti B.
Gauti B. Eggertsson: Síðustu tvö ár hafa orðið grundvallarbreytingar sem bregðast þarf við