Fyrrum vararíkissaksóknari, Helgi Magnús Gunnarsson, gagnrýnir harðlega framgöngu fyrrverandi yfirmanns síns, Sigríður Friðjónsdóttir. Helga hjólar í ákvörðun Sigríðar að áfrýja sýknudómi yfir lögreglumanni sem talinn var hafa gert mistök við framkvæmd hlerunar, án þess að brotavilji eða ásetningur lægi fyrir samkvæmt niðurstöðu dóms.
Lögreglumaðurinn taldi sig hafa heimild á grundvelli samskipta við samstarfsmenn, en skortur á formlegum úrskurði var tilefni ákærunnar.
„Störfin nógu erfið fyrir“
Helgi, sem lét af störfum eftir átök innan embættisins á sínum tíma, lætur þung orð falla og segir nálgunina ganga þvert gegn eðlilegri forgangsröðun í réttarkerfinu.
„Ég held að störf lögreglumanna séu nógu flókin og erfið þótt það hangi ekki yfir þeim slík meðferð við minnstu mistök,“ segir Helgi, en lögreglumaðurinn hefur þurft að vera frá störfum með sakamál hangandi yfir sér þrátt fyrir að hafa verið sýknaður í héraði.
Hann setur jafnframt spurningarmerki við hvernig ákæruvaldið velji sér verkefni.
„Hrægammarnir í kerfinu“
„Er það svona sem við viljum að réttarvörslukerfið nýti starfskrafta sína? Að leggjast á hvert annað eins og hrægammar vegna minnstu mistaka í stað þess að einbeita sér að raunverulegum glæpamönnum sem eru að selja börnunum okkar fíkniefni?“