Fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna, Jill Biden, segist hafa verið skelfingu lostin þegar hún fylgdist með eiginmanni sínum Joe Biden í kappræðum fyrir forsetakosningar þar í landi árið 2024.
„Ég varð skelfingu lostin, því ég hafði aldrei nokkurn tíma séð Joe svona, hvorki fyrr né síðar,“ sagði Jill Biden í þættinum CBS News Sunday Morning.
„Ég veit ekki hvað gerðist,“ sagði hún og segist hafa haldið að hann væri að fá heilablóðfall.
Steig til hliðar mánuði seinna
Um mánuði eftir kappræðurnar umræddu steig Biden til hliðar sem forsetaefni Demókrata fyrir kosningarnar. Inn steig Kamala Harris sem laut í lægra haldi fyrir Donald Trump forseta.
Biden varð fyrsti sitjandi forsetinn til að draga sig úr forsetakjöri síðan Lyndon B. Johnson forseti steig til hliðar í mars 1968.