Flak Douglas DC-4-flugvélar Pan American-flugfélagsins sem fórst í Atlantshafi fyrir 74 árum er fundið. Flak vélarinnar fannst á um 610 metra dýpi undan ströndum Púertó Ríkó með aðstoð dróna sem búinn var ómsjá.
Flugvélin, sem bar heitið Clipper Endeavor, var á leið frá flugvellinum í San Juan í Púertó Ríkó til New York í Bandaríkjunum. Báðir hreyflar á hægri væng vélarinnar stöðvuðust skömmu eftir flugtak í apríl 1952.
Hafði í för með sér miklar umbætur á sviði flugöryggis
Allir um borð lifðu af höggið sem vélin fékk á sig þegar hún skall á haffletinum. Farþegar áttu þó í erfiðleikum með að finna björgunarvesti og -báta. Vélin sökk hratt í hafið og af þeim 69 sem voru um borð lifðu aðeins 17 af.
Ráðist var í miklar umbætur á sviði flugöryggis eftir slysið og kynning á öryggisatriðum var gerð að skyldu í öllu áætlunarflugi.
Þáttur á Discovery Channel helgaður leitinni að flakinu
Leitin að flakinu var sameiginlegt verkefni Air/Sea Heritage stofnunarinnar og dagskrárgerðarmanna sjónvarpsstöðvarinnar Discovery Channel. Fjallað verður um leitina að flakinu í sérstökum þætti sjónvarpsþáttaraðarinnar Expedition Unknown á sjónvarpsstöðinni í haust.
„Í hvert skipti sem þú stígur um borð í flugvél geturðu verið viss um að þú sért öruggari vegna þess sem kom fyrir Clipper Endeavor og farþega vélarinnar fyrir þremur aldarfjórðungum,“ er haft eftir Josh Gates, þáttastjórnanda sjónvarpsþáttarins Expedition Unknown, í frétt BBC.
Höfðu reynt að finna flakið fyrir tveimur árum
Rannsakendur studdust við söguleg gögn og upplýsingar um veðurfar þegar slysið varð til að miða út tíu fersjómílna leitarsvæði. Tilraunir voru gerðar til að finna flakið 2024 en leit var hætt vegna slæms veðurs.
Flakið fannst með aðstoð dróna snemma í síðasta mánuði en það hafði brotnað í tvo hluta. Frekari rannsóknir staðfestu að þarna lægi Clipper Endeavor en ljósmyndir sýna nafn flugvélarinnar og flugfélagsins á skrokki flugvélarinnar.