Breskur maður var í dag dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir að nauðga konu árið 2003. Á meðan hann komst undan réttvísinni í fjölda ára sat saklaus maður í fangelsi fyrir glæpinn.
Paul Quinn, 52 ára, var í dag fundinn sekur um að hafa nauðgað ungri móður árið 2003 þegar hún var á leið heim til sín um nótt í Little Hulton í norðvesturhluta Englands.
Andrew Malkinson, nú sextugur, var ranglega sakfelldur fyrir árásina árið 2004 en hann hélt alla tíð fram sakleysi sínu. Hann sat í fangelsi í 17 ár áður en DNA-rannsókn leiddi í ljós að hann gæti ekki hafa verið gerandinn og var hann látinn laus árið 2020.
Gagnrýnir lengd dómsins
Quinn var sakfelldur eftir sex vikna réttarhöld í Manchester og dæmdur til 21 árs fangelsisvistar en Malkinson harðlega gagnrýnt lengd dómsins og sagt hann vægari en þann sem hann sjálfur fékk sem saklaus maður.
„Mér finnst það móðgun að þessi ofbeldisfulli og siðlausi einstaklingur, sem lét mig þola tvo áratugi af fordæmingu og þjáningum, hafi fengið vægari dóm en ég fékk þótt ég, saklaus maður,“ sagði Malkinson í yfirlýsingu og benti á að Quinn gæti hugsanlega fengið reynslulausn eftir að hafa afplánað aðeins 14 ár, eða tvo þriðju dómsins.
Var barin, bitin, kyrkt og nauðgað
Konan sem varð fyrir árásinni tók þátt í réttarhöldunum og hlaut mikið lof fyrir hjálp sína. Hún var barin, bitin, kyrkt meðvitundarlaus og nauðgað eftir að henni var rænt af götu aðfaranótt 19. júlí 2003.
Í yfirlýsingu sem lesin var upp fyrir dómi sagðist hún vera fegin að hafa loksins fengið réttlæti en sagði að áhrif glæpsins myndu fylgja henni sem og Malkinson alla þeirra ævi.
Malkinson starfaði sem öryggisvörður í verslunarmiðstöð nálægt vettvangi árásarinnar og var ákærður eftir að hafa ranglega verið bendlaður við málið í vitnaleiðslu lögreglu.