Um 80 gestir mættu á fund samtakanna Til vinstri við ESB á laugardaginn í Tryggvaskála á Selfossi. Framsögumenn voru þau Frosti Sigurjónsson rekstrarhagfræðingur og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og var erindum þeirra vel tekið að því er fram kemur í tilkynningu.
Fundurinn var í boði Suðurlandsdeildar samtakanna. „Evrópusambandið og fjárhagsleg staða ríkja sambandsins hefur farið síversnandi,“ segir þar enn fremur og að verkalýðshreyfingin komi til með að þurfa að fara inn á línu fastgengisstefnu myntbandalagsins og undirgangast kröfu þess um verðstöðugleika sem veikir þar með samningsstöðu hreyfingarinnar.
Fundinum stýrði Ögmundur Jónasson, fyrrum ráðherra og formaður BSRB, og spunnust líflegar umræður þar sem margir tóku til máls, segir í tilkynningu.


