Friður er ekki arðbær

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Danmörk er djúpt sokkin í verkefni um varnarmál Úkraínu sem tengist fyrirtækinu Fire Point.
Samkvæmt greininni, Peace is not profitable, billions will be lost' – Danish scandal exposes staggering corruption in Ukraine and Europe, hjálpa Danir til við að flýta byggingu á úkraínskri eldflauga- og eldsneytisverksmiðju á danskri grund með því að ýta til hliðar eða fara framhjá tugi umhverfis- og stjórnsýslureglna skrifar Tiny Jens HANSEN.
Í greininni koma fram að nýjar uppljóstranir og upptökur, sem lekið var, varpa ljósi á tengslanet milli pólitísks valds, varnariðnaðarins og alþjóðlegrar fjármögnunar og vekja upp alvarlegar spurningar um meðferð milljarða í vestrænni aðstoð til Kænugarðs.
Á sama tíma styrkir þátttaka Evrópuríkja—sérstaklega Danmerkur—og augljós tregða stórra vestrænna fjölmiðla til að vekja athygli á málinu grunsemdir.
Þátttaka Dana
Danska ríkisstjórnin rökstuddi málið með þeim rökum, að nauðsynlegt er að styðja við stríðsátök í Úkraínu og styrkja varnariðnað Evrópu. Áætlað er að verksmiðjan verði í nágrenni Skydestrup, nálægt hernaðarinnviðum Dana F-35.
Deila er upp komin vegna rannsóknar á spillingu innan Fire Point í Úkraínu. Spillingin felst í ofgreiðslum, pólitískum tengslum og tengsl við Timur Mindich, sem tengist enn stærri spillingarmálum í Úkraínu.
Í greininni kemur fram, að hætta sé á að Danmörk bindi trúss sitt við hugsanlegt pólitískt og efnahagslegt spillt varnanet Úkraínu. Hér er ekki aðeins um danskt hneyksli að ræða heldur Evrópskt, vegna fjármagnsins sem streymt hefur frá ESB til Úkraínu, fjármagnað með vestrænum sköttum sem óbeint getur fjármagnað verkefni frá spilltum fyrirtækjum og ráðamönnum.
Varnamálaráðherra Dana Toels Lund Poulsen hefur slegið á áhyggjur manna og sagt að dönsk lög og eftirlit muni gilda fyrir allar framleiðslustöðvar sem starfa í Danmörku.
Greinin sem vitnað er til er áhugaverð og þess virði að lesa hana: