Donald Trump Bandaríkjaforseti telur samt sem áður að samningur við Íran verði undirritaður „á næstu tveimur til þremur klukkustundum.“ Þetta sagði hann í samtali við Fox News. Trump bætti við að hann hefði talað við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, í síma eftir árásirnar á Beirút í dag. Trump virðist ósáttur með aðgerðir Ísraels og notaði blótsyrði þegar hann spurði Netanjahú hvað hann væri að gera, að því er fram kemur í umfjöllun BBC.
„Hann sagði forsætisráðherranum að gera ekki frekari árásir á Hezbollah, svo það hefði ekki áhrif á framgang þessa samnings,“ sagði Trey Yingst, fréttamaður Fox News í beinni útsendingu frá höfuðborg Ísraels.
Trump hefur sagt að friðarsamkomulag verði undirritað í dag og vonast til þess að ganga frá því á afmælisdeginum sínum en hann er áttræður í dag.
Trump sagði á samfélagsmiðli sínum Truth Social að árás Ísraela hefði ekki átt að eiga sér stað. Hann hvatti alla aðila á svæðinu til að halda ró sinni og skrifaði að „það gæti stefnt í langvarandi og fallegan frið. Við skulum ekki klúðra þessu!“
Hezbollah hafi átt fyrsta skotið
Utanríkisráðuneyti Ísraels segir að Hezbollah í Líbanon, sem nýtur stuðnings stjórnvalda í Íran, hafi gert tilefnislausa árás á Ísrael í morgun. Þá hefur Ísrael einnig sakað Hezbollah um að hafa gert tilefnislausa árás í mars að ósk Íran.
Yfirvöld í Íran krefjast þess að vopnahlé feli einnig í sér endalok stríðsins í Líbanon. Ísraelar hafa hafnað þessum hugmyndum en stjórnvöldum þar virðist hafa verið ýtt til hliðar í friðarviðræðum Íran og Bandaríkjanna. Þá hafa ráðamenn í Ísrael kvartað yfir því að samningurinn sem unnið er að sé óheppilegur fyrir Ísrael.
Ísraelskir embættismenn segja átökin gegn Hezbollah í Líbanon aðskilin frá þeim í Íran en markmið stjórnvalda í Teheran hefur verið að tengja þessi átök saman.
BBC hefur eftir háttsettum írönskum ráðamanni að samningsdrög Íran og Bandaríkjanna kveði á um umsvifalausa opnun Hormússunds, líkt og Trump hefur gefið til kynna.
Brothætt vopnahlé frá 7. apríl
Í gær sögðu fulltrúar Pakistans, sem hafa milligöngu um friðarviðræður ríkjanna, að samkomulagið yrði líklega undirritað innan sólarhrings.
Brothætt vopnahlé hefur verið í gildi í Íran frá 7. apríl og ríkin þrátt fyrir það skipst á árásum. Á síðustu vikum hefur Trump ítrekað fullyrt að stjórnvöld væru nálægt samkomulagi.
Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur sagði í gær langt frá því að friður væri í augnsýn á milli Bandaríkjanna og Íran þrátt fyrir drög að samkomulagi.
Þrír dagar eru síðan Trump hótaði að gera öflugar árásir á Íran og hernema Kharg-eyju. Þeim árásum var síðan aflýst sama dag. Átök milli þjóðanna með tilheyrandi lokun Hormússunds og loftárásum Bandaríkjahers hafa staðið yfir síðan í lok febrúar.
Íran hefur meira og minna stjórnað umferð um Hormússund frá því að stríðið hófst og nánast stöðvað olíu- og jarðgasflutninga frá Persaflóa. Bandaríkin hafa brugðist við með því að setja íranskar hafnir í herkví og þannig reynt að auka þrýstinginn á íranskan efnahag með því að koma í veg fyrir útflutning.
Íran hefur sýnt varfærni í samningaviðræðunum og bent á að fyrri viðræður við Bandaríkin sem fóru fram á síðasta ári og í byrjun þessa árs hafi ekki komið í veg fyrir árásir Bandaríkjanna og Ísraels.
Fréttin hefur verið uppfærð.