Friðarsamkomulag hefur náðst milli Bandaríkjanna og Írans.
Donald Trump Bandaríkjaforseti, íranski herinn og Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans, sem hefur leitt samningaviðræður, staðfesta þetta allir. Samkvæmt heimildum AFP-fréttaveitunnar verður samkomulagið undirritað í Genf í Sviss á föstudag.
Í samkomulaginu felst að Íranir opna fyrir umferð um Hormússund, sem hefur að mestu verið lokað frá því í byrjun mars eftir að Bandaríkjamenn hófu loftárásir á Íran. Á móti afléttir Bandaríkjaher herkví sinni á sjó.
„Skip heimsins, ræsið vélarnar. Látið olíuna flæða!“ skrifaði Donald Trump á samfélagsmiðilinn Truth Social.
Forsætisráðherra Pakistans greinir frá því að í samkomulaginu felist einnig að bundinn sé tafarlaus og varanlegur endi á allar hernaðaraðgerðir, þar á meðal í Líbanon. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur ekki tjáð sig um aðgerðirnar.
Ísraelsmenn hafa hingað til ekki tekið vel í hugmyndir um að hætta hernaðaraðgerðunum. Bandaríkjaforseti hefur hins vegar áður sagt að Ísraelar þurfi að sætta sig við niðurstöður samningaviðræðnanna. Hann ráði sjálfur för en ekki forsætisráðherra Ísraels.
Svo virðist þó sem enn eigi eftir að hnýta lausa enda. Á samfélagsmiðlinum X skrifar forsætisráðherrann: „Nú þegar samkomulagið er í höfn munu sáttasemjarar standa fyrir röð funda í þessari viku. Þessar viðræður, sem fara fram fyrir undirritun, leggja grunninn að tæknilegum viðræðum og opinberu undirritunarathöfninni.“
Hann hefur verið einn af aðalsamningamönnum í stríðinu í Miðausturlöndum sem hófst 28. febrúar með árás Bandaríkjanna á Íran.
Bæði Trump og Íranir vilja lýsa samkomulaginu sem miklum sigri.
Íranski herinn segir í yfirlýsingu að Bandaríkin og Ísrael hafi verið niðurlægð. Íranskar hersveitir hafi „með því að beita guðlegum vilja sínum niðurlægt óvini sína, bæði ameríska og síonista“ sem hafi átt þann kost einan að gefast upp.
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur þegar tekið að lækka. Verð á Brent-olíu lækkaði um 4% á fyrstu klukkutímunum eftir að fregnir bárust af samkomulaginu og stóð þá í 84 dölum á tunnu.