Franska flugmóðurskipið Charles de Gaulle lagði af stað áleiðis að Rauðahafi í gær. Skipinu er ætlað að vera að tryggja að siglingar um Hormússund verði öruggar þegar friður kemst á í Mið-Austurlöndum. Frönsk stjórnvöld vilja með þessu sýna að þau séu tilbúin að efla öryggi við Hormússund og séu fær um það, sagði ónafngreindur aðstoðarmaður Emmanuels Macrons Frakklandsforseta við fjölmiðla.
Macron og Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands eru í forsvari fyrir fjölþjóðlegri hernaðaraðgerð sem ætlað er að tryggja siglingar um Hormússund. Yfir fjörutíu þjóðir hafa komið að skipulagi og undirbúningi aðgerðarinnar sem verður varnarlegs eðlis og hefst ekki fyrr en friður kemst á í Mið-Austurlöndum.
Frakklandsforseti hefur áhyggjur af stigmögnun átaka
Macron sagði í færslu á X að hann hefði rætt við Masoud Pezeshkian forseta Írans í gær og tjáð honum að hann hefði miklar áhyggjur af stigmögnun átaka í Mið-Austurlöndum á sama tíma og friðarviðræður stæðu yfir. Macron sagði í færslu sinni að deiluþjóðir yrðu að aflétta öllum bönnum á siglingum um Hormússund án tafar og án skilmála og vísaði þar til herkvíar Bandaríkjanna á höfnum í Íran og tangarhalds Írana á þessari mikilvægu siglingaleið.
Vel útbúið flugmóðurskip
Flugmóðurskipið Charles de Gaulle er flaggskip franska sjóhersins. Um borð eru 20 Rafale orrustuþotur og skipið er í fylgd nokkurra freigátna. Samkvæmt franska varnarmálaráðuneytinu siglir skipið um Súesskurð og áfram til suðurhluta Rauðahafs þar sem það verður til taks þegar aðstæður skapast fyrir hugsanlegar aðgerðir við Hormússund.