Framsóknarflokkurinn kynnti áherslumál sín fyrir komandi borgarstjórnarkosningar á blaðamannafundi í Elliðaárdal í dag. Flokkurinn boðar Reykjavík á grænu ljósi og leggur áherslu á að þörf sé á breytingum í forystu Reykjavíkurborgar.
Á meðal stefnumála Framsóknar í Reykjavík er að auka sveigjanleika í leikskólamálum með því að styðja við vinnustaði sem vilja opna daggæslu, að bjóða tekjulágu eldra fólki upp á frístundastyrk, að færa meira líf í hverfi borgarinnar og að opna fjölskyldumiðstöð til að þjónusta barnafjölskyldur.
„Við í Framsókn segjum að Reykjavík hafi alltof lengi verið á rauðu ljósi. Við þurfum að kveikja græna ljósið, fá grænar tölur í bókhaldið, við þurfum að fá græna ljósið í umferðina, greiða úr umferðarflækjum og fjárfesta í innviðum fyrir samgöngur,“ segir Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í Reykjavík.
„Svo þurfum við að vernda grænu svæðin og hverfin okkar. Við sjáum það núna að skipulagsstefna þeirra flokka sem hafa stýrt borginni um alltof langt skeið er orðin algjörlega gjaldþrota.“
Fólk vilji hafa bílastæði heima hjá sér, dagsbirtu og græn svæði sömuleiðis.
„Við þurfum að mæta þörfum fólks frekar en að reyna að breyta því hvernig fólk lifir lífi sínu.“
„Miðjan er mikilvæg“
Einar segir erindi Framsóknar í komandi borgarstjórnarkosningum mjög mikilvægt.
„Við sjáum að pólaríseringin í borgarmálunum er mjög mikil – annars vegar eru það flokkar sem eru á harðahlaupum út á hægri vænginn og hins vegar flokkar sem eru mjög langt úti á vinstri vængnum sem eru að njóta fylgis núna. Við í Framsókn erum sannfærð um það að miðjan er mikilvæg. Það verður einhver að tala fyrir skynseminni, sáttinni og samvinnunni,“ segir Einar.
Fyrst og fremst verði að hlusta á fólk og mæta þörfum borgarbúa.
„Okkur hugnast ekki hvernig pólitíkin er að þróast í umræðunni um samgöngumálin. Annars vegar flokkar sem segjast ætla að hætta við þetta allt saman og setja á byrjunarreit og svo hitt – flokkar sem hlusta ekki á gagnrýni og það eru þeir flokkar sem hafa stýrt þessum málum um langt skeið. Auðvitað sjáum við það að það er hægt að ná málamiðlun, Framsóknarlausn í samgöngumálum, hlusta á gagnrýnina – breyta útfærslu Borgarlínu á Suðurlandsbraut þannig að hún sé í meiri sátt við fyrirtæki og viðskiptavini sem reiða sig á aðgengi á Suðurlandsbrautinni.“
Það er mat Framsóknar að Sundabraut eigi að setja í göng. Þá segir Einar að byggja verði mislæg gatnamót, hjólastíga, brýr og forgangsakreinar fyrir strætisvagna til að ná árangri í samgöngumálum í Reykjavík.