Heilbrigðisyfirvöld í Frakklandi skráðu 5764 umframdauðsföll í hitabylgjunni sem gekk yfir landið í síðasta mánuði. Þetta er hæsta hlutfall síðan í mikilli hitabylgju sem reið yfir landið 2003. Þá létust um 15 þúsund manns.
Þrjár hitabylgjur hafa gengið yfir Frakkland síðan í maí en dauðsföllin voru skráð í hitabylgjunni frá 17. júní til 2. júlí. Til samanburðar skráðu heilbrigðisyfirvöld 5722 umframdauðsföll tengd miklum hita frá júní fram í miðjan september á síðasta ári.
Af umframdauðsföllunum í hitabylgjunni var um tveir þriðju fólk sem var 75 ára eða eldra. Tæplega fimmtungur var fólk á milli 45 og 64 ára og helmingur lést á þriggja daga tímabili, frá 25. til 27. júlí.
Júnímánuður var sá heitasti síðan mælingar hófust 1847. Hitastig fór yfir 40 stig á mörgum stöðum og hitamet féllu ítrekað.