Flúðasveppir voru eitt af þeim fyrirtækjum sem forsetahjónin heimsóttu um helgina þegar þau fögnuðu 1150 ára afmæli Hrunamannahrepps með heimamönnum.
Flúðasveppir er eina fyrirtæki landsins sem ræktar sveppi og það er alltaf meira en nóg að gera eins og bústjórinn þekkir manna best en það er Ævar Eyfjörð Sigurðsson.
„Það gengur vel að rækta þannig að við erum bara að sigla okkar sjó með magn og gæði. Við erum að framleiða í hverri viku um það bil ellefu og hálft tonn af sveppum, sem gefur okkur rétt rúmlega sex hundruð tonn á ári, sem við erum að framleiða,” segir Ævar.
„Þetta er bara fyrir innanlandsmarkað en svo leyfum við Grænlendingum aðeins að smakka á Flúðasveppum þannig að það er kannski 0,1 prósent af okkar framleiðslu, sem við flytjum yfir til Grænlands,” bætir Ævar við.
Ævar segir að ræktun á sveppum sé mjög flókin og vanda þurfi vel til allra þátta í ræktun þeirra og þar skipti starfsfólk miklu máli en hann segist vera með topp fólk í öllum stöðum í framleiðslunni.
Á hverju föstudagskvöldi eru heimabakaðar pizzur hjá forsetahjónunum og þeirra fólki á Bessastöðum og þá er eins gott að vera með réttu sveppina.
„Ég er mjög spenntur fyrir því að hafa bara sveppi á pizzum en krakkarnir vilja oftast eitthvað kjötmeti. En það er náttúrulega stórkostlegt að koma hingað og sjá hvernig öll ræktunin fer fram frá haga til maga. Þetta er einstakt og eina fyrirtækið í heiminum, sem framleiðir sveppi með svona aðferð,” segir Björn Skúlason, eiginmaður forseta Íslands.