Er þetta meðal fjörutíu og níu mála sem skráð voru í dagbók lögreglu um störf gærkvöldsins og næturinnar. Alls eru nú sjö vistaðir í fangageymslu samkvæmt skýrslu lögreglu.
Þá bárust lögreglu tvær tilkynningar um menn í annarlegu ástandi í miðborginni, annar þeirra hafi verið vistaður í fangaklefa sökum ástands.
Lögregla hafði einnig afskipti af ökumanni, grunaður um akstur undir áhrifum áfengis-, ávana- og fíkniefna en einnig fyrir akstur án gildra ökuréttinda. Hann hafi verið færður á stöð í hefðbundið ferli.
Lögreglustöð þrjú, sem sinnir verkefnum í Breiðholti og Kópavogi, sinnti þjófnaði í verslun í Kópavogi sem var afgreiddur á vettvangi. Einnig var innbrot framið í stofnun í Breiðholti. Málinu er ekki lýst frekar en að það sé í rannsókn.