Deiluaðilar funduðu síðast í Karphúsinu á fimmtudagskvöld. Engar vendingar hafa orðið í deilunni svo fréttastofu sé kunnugt um. Enn ríkir svokallað fjölmiðlabann að tilmælum sáttasemjara þar sem deiluaðilar forðast að tjá sig við fjölmiðla um efnisþætti viðræðna.
Vísir hefur gert flókinni stöðu Icelandair ítarleg skil í umfjöllun síðustu vikna. Í gær greindum við frá leigu Icelandair á vél og áhöfn til að mæta vélaskorti.
Þá var staðan til umræðu í Sprengisandi í morgun. Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku, hefur gert sig gildandi í umræðu um stöðu félagsins. Hann segir félagið mikilvægasta fyrirtæki landsins, en það muni þó ekki bjarga því frá glötun nái það ekki að halda uppi sjálfbærum rekstri.