Þingi Alþýðusambands Íslands lauk á föstudaginn þar sem Georg Páll Skúlason var kjörinn forseti sambandsins. Halla Gunnarsdóttir hafði betur gegn Sólveigu Önnu Jónsdóttur í baráttu um fyrsta varaformann. Töluvert var deilt innan verkalýðshreyfingarinnar í aðdraganda þingsins og Sólveig Anna, formaður Eflingar, hefur talað um mögulega úrsögn félagsins úr ASÍ.
„Það eru háværar raddir innan míns félags um að réttast sé að Efling segi sig úr Alþýðusambandinu. Ég hef verið og er að mörgu leyti sammála þeirri nálgun og ég tel að við getum staðið í okkar mikilvægu efnahagslegu baráttu utan vébanda Alþýðusambandsins,“ sagði Sólveig. Rætt var við Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, í Vikulokunum um verkalýðshreyfinguna á tímamótum.
Ágreiningur innan ASÍ ekki ný saga
Ragnar Þór var sat í stjórn VR frá 2009 til 2024 og var formaður félagsins frá 2017 til 2024. Hann segist því sjá deilurnar með „öðrum gleraugum en margir aðrir.“ „Þegar ég byrjaði í verkalýðshreyfingunni 2009 þá heyrðist lítið sem ekkert í henni og afleiðing þess var að það kom nýtt fólk að borðinu, þar á meðal ég og síðan síðar Sólveig Anna. Ég horfi svolítið á þetta þannig að ég vil miklu frekar sjá lífsmark með verkalýðshreyfingunni heldur en einhvern svona samdauna uppgjafartón sem er einhvern veginn miðstýrður,“ segir Ragnar.
Hann bendir á að átökin eigi sér lengri aðdraganda og sögu. „Það er flókið að koma ólíkum stéttum að samningaborðinu, sérstaklega sameiginlega, þar sem þú ert með til dæmis félag eins og VR, og ég tala nú ekki um fagfélögin líka, þar sem hefur verið meiri áhersla á hlutfallshækkanir, prósentuhækkanir, á meðan starfsgreinafélögin og verka- og láglaunafélögin hafa verið að leggja meiri áherslu á lægstu laun og krónutöluhækkanir. Ég þekki það bara af eigin raun að það er erfitt að samtvinna þetta tvennt,“ segir Ragnar.
„Að það sé ágreiningur um leiðir og mögulega hvar Alþýðusambandið liggur í hagsmunagæslu er ekki ný saga. Það hefur verið spenna innan sambandsins árum ef ekki áratugum saman, en ég allavega vill frekar sjá svona allavega í verkalýðshreyfingunni eitthvað lífsmark heldur en hitt, en auðvitað finnst mörgum þetta óþægilegt - og manni finnst það auðvitað þannig - en ég held að hreyfingin muni nú vinna sig úr þessu eins og hún hefur gert áður.“
„Getum náð ótrúlegum árangri með því að vera sameinuð“
Aðspurður hvort hann telji sjálfsagt að verkalýðsfélögin séu öll sameinuð undir hatti ASÍ og hvort hann telji það betra bendir hann á að samstaða hafi verið árið 2019 um aðferðafræðina þegar samið var. „Það var enginn ágreiningur um að það þyrfti að lyfta upp lægstu laununum. Sömuleiðis var gert líka í samningunum 2024 að þar var meiri áhersla á lægstu launin en aðal ágreiningurinn þar voru kannski tryggingar eða forsenduákvæði til þess að tryggja það að til dæmis atvinnulífið og eftir atvikum stjórnvöld eða hið opinbera myndu vera meira skuldbundinn til að taka þátt í því verkefni sem lagt var af stað með,“ segir Ragnar.
„Okkur hefur tekist að leiða hreyfinguna saman hugmyndafræðilega en síðan getur auðvitað komið ákveðið rof, síðustu þrír, fjórir samningar hafa verið drifnir áfram af því að lyfta kjörum þeirra lægst launuðu. Nú er kannski spurning hvort að fagfélögin eða iðnaðarmenn, og verslunarmenn til að mynda og fleiri aðilar, til dæmis BHM, segi bara að nú sé komið svolítið að okkur, en alla jafna þá getum við náð ótrúlegum árangri með því að vera sameinuð. Stundum er það hægt. Stundum ekki,“ segir hann.
Nánar var rætt við Ragnar um aðgerðir Seðlabankans, leigubremsu, verkalýðshreyfinguna og fleira í Vikulokunum.