Byrjað verður að bólusetja fólk við inflúensu upp úr miðjum næsta mánuði.
Landlæknisembættið segir að bóluefni verði tilbúið til dreifingar 15. október. Því verður fyrst um sinn dreift til hjúkrunarheimila og heilbrigðisstofnana til að bólusetja fólk í forgangshópum.
Aðrir geta vænst þess að verða bólusettir í nóvember.
Börn á aldrinum tveggja til 17 ára sem eru með áhættuþætti án frábendinga geta fengið nefúðabóluefni frá 30. september.