Fleiri berklasmit hafa greinst hjá starfsfólki Landspítala síðustu vikur. Læknir sem greindist segir það varla geta verið tilviljun að mörg smit komi upp á sama stað. Bæta verði sýkingavarnir.
„Ég var semsagt að greinast með berkla fyrir tæpum tveimur vikum eftir að hafa fengið sms um að hafa verið útsettur fyrir berklum á bráðamóttökunni,“ segir Steinar Orri Hafþórsson bráðalæknir á bráðamóttöku Landspítala.
Í febrúar greindust átta starfsmenn bráðamóttöku Landspítala með berkla og luku nýverið lyfjameðferð. Smitið var ein birtingarmynd aðstæðna sem sköpuðust á deildinni í febrúar þegar ekki var hægt að leggja sjúklinga þaðan inn á aðrar deildir Landspítala vegna plássleysis.
Og líkt og þessir átta er Steinar með svokallaða sofandi berkla, sem þýðir að hann er einkennalaus en gæti fengið einkenni síðar. Fjögurra mánaða sýklalyfjameðferð sem hann hóf í vikunni á að draga úr líkunum á því, en henni fylgja ýmis óþægindi og rask, reglulegt eftirlit og blóðprufur.
Við erum orðin tíu samtals
Auk Steinars greindist annar starfsmaður fyrir skömmu.
„Ég veit ekki hvort það eru fleiri, en við erum þá allavega orðin tíu samtals. Það er leiðinlegt að þetta sé að koma upp aftur núna þrátt fyrir ... maður hefði viljað sjá einhverja breytingu eftir að þessi fyrstu smit komu upp. Maður hefði viljað sjá sýkingavarnir hertar,“ segir Steinar.
Hræddur við að bera berklana í sína nánustu
Hann segir að það geti vissulega verið óþægilegt að mæta til vinnu á stað þar sem sýkingavörnum er ábótavant, en stundum verði fólk hreinlega samdauna því.
„Þó maður hafi hingað til ekkert verið sérlega hræddur um sjálfan sig, þá er þetta meira hræðslan við að bera þetta í fjölskyldu og börnin. Og það versta er að það er eins og það sé ekki alveg hlustað á mann, eða hlustað á ákall starfsfólks um bættar sýkingavarnir.“
Hver getur bætt úr því? „Ríkisstjórnin þarf að koma þarna að og stjórn spítalans mætti byrja á að viðurkenna vandann.“
Það að tíu, sem vinna á sama staðnum, skuli greinast með sama smitið - getur það verið tilviljun?
„Mér finnst það mjög ólíklegt.“