Fertugasta N1-mót drengja í knattspyrnu hófst á Akureyri í dag. 180 lið keppa á mótinu og eru keppendur rúmlega 1600 talsins, frá öllum landshornum. Spilaður er fótbolti frá morgni til kvölds fram á laugardag.
Mótið er þó ekki bara fótbolti. Bæði er mikil dagskrá á mótssvæðinu og í kringum mótið og þá þarf að gefa keppendum að borða og hýsa þá:
„Heldur betur, þetta er algjör viðburður hérna á Akureyri. Við erum að fá 5-6000 manns í bæinn. 1600 keppendur að keppa og skemmta sér. Við erum með tónleika á föstudagskvöldið sem við höldum, við erum að gefa þeim að borða - þetta eru ábyggilega hátt í 18.000 matarskammtar. Þetta er heljarinnar skipulag,“ segir Arnar Gauti Finnsson, einn af mótsstjórum N1-mótsins.
Mikið skipulag að baki
Að svona móti kemur mikill mannskapur í sjálfboðavinnu og það krefst mikils skipulags:
„Hérna er búið að vera mikið að gera. Þetta er búið að taka allt af okkur undanfarnar vikur í skipulagi. Sérstaklega undanfarna daga. Síðustu dagarnir eru alltaf mjög strembnir,“ segir Gauti sem er mjög þakklátur þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem leggja hönd á plóg.
Mótið var fyrst haldið árið 1987 og hefur vaxið og dafnað mikið síðan þá. Margt hefur breyst en N1 hefur verið helsti styrktaraðili mótsins frá upphafi:
„N1 er búinn að vera helsti styrktaraðilinn að mótinu síðastliðin 40 ár. Þeir eru að gera alls konar nýtt - þeir eru að taka upp nýtt merki, ný heimasíða er fyrir mótið og svo var gefið út nýtt lag Vinir fyrir lífið sem er á Spotify. Ég mæli með að allir hlusti á það,“ segir Arnar Gauti.