Fjórir eru í gæsluvarðhaldi, grunaðir um aðkomu að smygli á 14 lítrum af amfetamínbasa til landsins með gámaskipinu Dettifossi.
Gæsluvarðhald yfir þremur mönnum var framlengt í vikunni en samkvæmt heimildum Vísis hefur fjórði maðurinn verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Lögregla gerði húsleit hjá tveimur sem sitja í gæsluvarðhaldi.
Sex voru handteknir eftir að lögregla og tollgæsla fóru um borð í Dettifoss í Sundahöfn 6. apríl. Þremur var sleppt stuttu síðar. Fjórir eru nú í haldi. Tveir þeirra eru starfsmenn Eimskips og eru í gæsluvarðhaldi til 28. apríl. Þriðji maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 5. maí. Sá fjórði var úrskurðaður í gæsluvarðhald í gær og rennur það út 30. apríl.
Styrkur amfetamínbasans liggur ekki fyrir og því ekki hægt að segja til um hversu mikið hefði verið hægt að framleiða til sölu úr honum. Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn í miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, gerir ráð fyrir að það hafi áhrif á ólöglegan markað.
„Við teljum að svo sé. Að það hafi alltaf einhver áhrif, að minnsta kosti til skemmri tíma,“ sagði Ævar Pálmi í samtali við fréttastofu þegar málið kom upp.