Paul Watson og lögmenn hans segja að lög hafi verið brotin þegar skipið var kyrrsett og segja skipið vel haffært. Nú er Bandero kominn upp á Akranes. Í dag barst tilkynning frá Kristjáni Loftssyni, forstjóra Hvals hf. um að sýslumaðurinn á Vesturlandi hefði kyrrsett Bandero að kröfu Hvals. Fyrirtækið telur sig eiga skaðabótakröfu á hendur eigandanum og vill að skipið sé kyrrsett sem trygging fyrir því að upp í kröfur fáist.
Kastljós fór um borð í Bandero í fylgd með Einari Jóhannesi Einarssyni, lærðum vélfræðingi og fyrrverandi skipaeftirlitsmanni hjá Samgöngustofu.
Skipið virðist við fyrstu sýn hálfgerður ryðdallur en Einar segir það ekki þurfa að segja neina sögu.
Um borð núna eru vélstjóri og skipstjóri. Þeir eru nýkomnir til landsins og voru ekki í hópnum sem var um borð þegar skipið var tekið.
Paul Watson hefur gagnrýnt kyrrsetninguna og telur að íslensk yfirvöld segi gögn vanta sem sannanlega séu til staðar um borð og að ýmislegt hafi verið tekið úr skipinu án heimildar, þar á meðal símar skipverja.
Nick Bohnet skipstjóri Bandero sýnir Einari nýlegt AIS-vottorð, árlega skoðunarskýrslu. Hann segir að skoðunarmenn Samgöngustofu hafi sagt að vottorðið hafi ekki verið tiltækt en Nick segir það hafa verið um borð allan tímann.
Þá sýnir hann einnig alþjóðlegt mælabréf sem Samgöngustofa segir að sé útrunnið. Það er rétt en það var ekki útrunnið þegar skipið var tekið. Það rann ekki út fyrr en eftir að skipið var kyrrsett.
Ásetningur stjórnvalda um að stoppa Paul Watson-samtökin ráðið för
Samgöngustofa sagði líka að skoðunarskýrslu vegna AIS-staðsetningarkerfis hefði vantað. Nýi skipstjórinn gat sýnt hana og Samgöngustofa staðfesti að nú væri hún komin með afrit. Eftir standa þá sjókort sem Samgöngustofa segir líka hafa vantað.
Nick segir það ekki sanngjarnt að gera athugasemd við að sjókort til að koma inn til Reykjavíkur hafi vantað þegar það var ekki ætlun Bandero að gera það.
„Þeir drógu okkur inn í Reykjavík, gegn áætlun skipsins. Það að þeir hafi farið með okkur eitthvert sem við höfum ekki kort fyrir er ekki undir okkur komið,“ segir Nick.
Bjarni Már Magnússon, einn lögmanna Paul Watson-samtakanna, gerir alvarlegar athugasemdir við framgöngu íslenskra yfirvalda.
„Það er margt mjög einkennilegt í þessu. Og það er ýmislegt sem virðist ekki hafa verið í samræmi við eðlilega starfshætti og þær reglur sem gilda um svona eftirlit. Og það er náttúrulega ekki í lagi. Alveg sama hvaða málefni það varðar, þá verða íslensk stjórnvöld að fara að lögum. Og þá skiptir ekki máli hver á í hlut,“ segir Bjarni.
Hann telur að ásetningur stjórnvalda um að stoppa athæfi Paul Watson-samtakanna hafi ráðið för í málinu, ekki lög og regla.
Fann enga annmarka á skipinu
Eftir að hafa skoðað skipið í þaula fann Einar Jóhannes enga annmarka á því. Hann segir að öll gögn sem hann hafi beðið um að skoða séu ekki í skipinu heldur hafi skipstjórinn sagt að þau hafi öll verið fjarlægð.
Samgöngustofa segist ekki vera með gögnin, engin gögn hafi verið fjarlægð. Einar er þeirrar skoðunar að Samgöngustofa hafi látið þvæla sér í vandræðamál.
„Af hverju eru þeir látnir vinna þetta skítverk?“ spyr Einar Jóhannes. „Mér finnst þetta mjög torkennileg málsmeðferð. Og ekki okkur til sóma.“
Eftir heimsókn Kastljóss og eftir að skrifleg svör Samgöngustofu við fyrirspurnum bárust, birtust skipaeftirlitsmenn Samgöngustofu óvænt í Akraneshöfn síðdegis. Þeir gerðu það sama og við degi áður, þ.e. skoðuðu skipið í þaula. Niðurstöður þeirrar skoðunar lágu ekki fyrir áður en þátturinn fór í loftið og því óvíst hvort Bandero sé enn kyrrsettur.