Einn af hverjum fimm landsmönnum er innflytjandi. Þetta kemur fram í tilkynningu Hagstofunnar um skiptingu landsmanna 1. janúar. Þá voru 19,6 prósent landsmanna innflytjendur og hafði hlutfallið hækkað úr 18,9 prósentum frá fyrra ári. 2012 var hlutfallið 7,4 prósent.
Alls bjuggu 77.226 innflytjendur á Íslandi um áramót. Innflytjendur af annarri kynslóð voru 8.351 talsins, 2,1 prósent allra landsmanna.
Pólverjar eru sem fyrr langfjölmennasti hópur innflytjenda. Þeir voru 23.055 talsins um áramót, 29,9 prósent allra innflytjenda. Næst fjölmennastir voru Úkraínubúar og Litáar.
Mikill munur er á fjölda innflytjenda eftir búsetu. Þeir eru fjölmennastir á Suðurnesjum, 34,0 prósent íbúa, en fámennastir á Norðurlandi vestra, 11,8 prósent.
1.085 fengu íslenskan ríkisborgararétt á síðasta ári og hafa þeir aldrei verið fleiri.