Sky Retreat Iceland, sem býður ferðamönnum gistingu í skálum á svæðinu milli Seljalandsfoss og Skógafoss, birti þann 26. júní myndband sem sýnir barn handleika egg úr þrastarhreiðri. Myndbandið birtist á Facebook-síðu fyrirtækisins og virkaði sem auglýsing, að minnsta kosti á þá netverja sem skrifuðu harðorðar athugasemdir undir færslunni. „Þið ættuð aldrei að raska ró í náttúrunni og hverja aðra til þess sama,“ skrifaði ein kona og maðurinn einn sagði: „Hvers vegna eruð þið að lyfta upp eggjunum og trufla fuglana? Hvað er að ykkur?ׅ“
Ferðaþjónustufyrirtæki birti myndband af því þegar egg voru handleikin í þrastarhreiðri