Feðgarnir Kristján Ásgeirsson og Óli Geir Kristjánsson hjá Alark arkitektum í Kópavogi hlutu fyrstu verðlaun í skipulagssamkeppni um Akureyrarvöll.
Að því er fram kemur í tilkynningu kynnti Halla Björk Reynisdóttir, formaður dómnefndar, niðurstöður í opinni hönnunarsamkeppni um skipulag Akureyrarvallar og nágrennis í Hofi í gær.
Alls bárust 16 tillögur í samkeppnina sem Akureyrarbær efndi til í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Ein tillaga reyndist ógild.
Á vef Arkitektafélags Íslands má sjá ítarlega umfjöllun um allar 15 tillögurnar. Í öðru sæti var tillaga marimo arkitekta, Brúum hjarta Akureyrar, og í þriðja sæti var tillaga Teikna - Teiknistofu Arkitekta, Vallartorg.
Styrkir tengingar við nærliggjandi hverfi
Vinningstillagan er að mati dómnefndar heildstæð og sannfærandi tillaga sem skapar eftirsóknarvert miðbæjarsvæði og gott búsetuumhverfi. Tillagan vinnur vel með staðaranda og sögu svæðisins, styrkir tengingar við nærliggjandi hverfi og endurvekur Akureyrarvöll sem lifandi samkomustað.
Í dómnefndaráliti segir að helsti styrkur tillögunnar felist í skýrri heildarsýn og raunhæfri nálgun á þróun svæðisins.
Að mati dómnefndar myndast gott samspil milli miðbæjar og norðursvæða þannig að til verður skýr tengipunktur. Sterk landslagshönnun og sögulegar skírskotanir eru bæði aðlaðandi og raunhæfar í rekstri með eðlilegu viðhaldi.
Í dómnefnd sátu:
- Tilnefnd af kaupanda: Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar Akureyrar og formaður skipulagsráðs, formaður dómnefndar, Hlynur Jóhannsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins á Akureyri, Sindri Kristjánsson, áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar í skipulagsráðs
- Tilnefnd af Arkitektafélagi Íslands: Borghildur Sölvey Sturludóttir, arkitekt FAÍ, HMS
- Tilnefnd af Félagi íslenskra landslagsarkitekta: Fríða Björg Eðvarðsdóttir, landslagsarkitekt FÍLA
- Ritarar dómnefndar: Einar Sigþórsson, verkefnastjóri skipulagsmála hjá Akureyrarbæ, og Rebekka Rut Þórhallsdóttir, fulltrúi skipulags- og byggingarmála hjá Akureyrarbæ
- Trúnaðarmaður dómnefndar: Gerður Jónsdóttir

