Björgunarskip Landsbjargar var kallað út fyrr í dag er farþegabátur strandaði við Akurey.
Í samtali við mbl.is segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, að gæslan hafi fengið tilkynningu frá skipstjóra farþegabátsins Skúlaskeiðs RE rétt fyrir klukkan 10 í morgun.
Hafði báturinn þá strandað en var búið að koma farþegum hans, alls 16 talsins, um borð í annan bát sem var skammt frá.
Þá var það mat skipstjórans að engin hætta hefði verið á ferðum.
Þó var björgunarskip Landsbjargar kallað út til að gæta öryggis á meðan reynt var að koma farþegabátnum aftur á flot og tókst það svo á þriðja tímanum í dag.
Sigldi síðan farþegabáturinn á eigin vélarafli til Reykjavíkur í fylgd björgunarskips Landsbjargar.
