Fann ástina á Tinder og endaði í Texas - Vísir

Fann ástina á Tinder og endaði í Texas - Vísir

Fann ástina á Tinder og endaði í Texas - Vísir

„Hey, þessi er sætur“

Í mars árið 2022 var Eydís að ljúka BS-námi í íþróttafræði. Hún stefndi á hjúkrunarfræðinám og starfaði á Kleppi og á bráðamóttöku Landspítalans. Hún hafði verið einhleyp í nokkur ár og var á Tinder „on and off“, eins og hún orðar það, þó að áhuginn á appinu væri takmarkaður.

Eitt kvöldið sá hún að bandarískur maður að nafni J.D. hafði „lækað“ hana.

„Ég hugsaði með mér: „Hey, þessi gaur er sætur.“ En svo pældi ég eiginlega ekkert meira í honum. Svo sendi hann mér allt í einu skilaboð og ég ákvað einhverra hluta vegna að svara.“

Umræddur maður reyndist heita John David, en alltaf kallaður J.D.

„Hann var á þessum tíma í Texas en það var einhver gaur sem hann vann með sem hafði sagt við hann að allar sætu stelpurnar á Tinder væru í Svíþjóð. Þess vegna stillti hann staðsetninguna sína í appinu á Svíþjóð, en var greinilega með nógu stóran radíus til að sjá mig á Íslandi og þannig fann hann mig. Svo spjölluðum við aðeins og ég bauð honum að followa mig á Instagram, sem hann gerði, og við héldum áfram að spjalla þar.“

Fljótlega small eitthvað.

Eydís segir að J.D. hafi verið ólíkur íslenskum mönnum sem hún hafði kynnst, opinn, hlýr og góður í létt spjall. Þau áttu líka margt sameiginlegt, voru bæði í crossfit og bæði náin fjölskyldum sínum.

„Svo stakk hann upp á að við myndum spjalla saman á FaceTime. Ég var mjög hikandi. Svo hringdi hann bara óvænt einn daginn og ég fór í algjört panikk. En hann var svo rólegur og ljúfur að þetta varð ekkert mál.“

Eftir það töluðu þau saman á FaceTime á hverjum degi. Á sama tíma var Eydís í krefjandi námi og tveimur vinnum.

„Ég vann í raun tvö hundruð prósent vinnu og fór alltaf seinna og seinna að sofa af því að kvöldin enduðu í símtölum við J.D.“

Óvænt ákvörðun

Í júní 2022 höfðu þau talað saman á Facetime á hverjum degi í þrjá mánuði. Þá keypti Eydís flugmiða til Denver og bókaði ferð út í september.

Hún var þó ekki beint full sjálfstrausts yfir þessari ákvörðun.

„Enn þann dag í dag skil ég hreinlega ekki hvernig ég hafði kjarkinn í þetta eða hvað ég var eiginlega að pæla. Þetta var nefnilega svo ólíkt mér. Ég hafði alltaf verið svona kvíðapési og hef alltaf þurft að vita allt fyrir fram. 

Ég fór varla á deit á Íslandi af því mér fannst svo óþægilegt að hitta nýtt fólk. 

Ég hafði ferðast helling í Bandaríkjunum, en aldrei til Suðurríkjanna – og aldrei til Texas.“

Vinkonur hennar voru, kannski af skiljanlegum ástæðum, ekki alveg afslappaðar yfir þessu. Þær héldu að hún væri mögulega búin að missa vitið. Eydís vissi það sjálf að þetta hljómaði ekki eins og skotheld áætlun á pappír. Hún lét J.D. senda sér staðfestar myndir af ökuskírteininu sínu og sendi upplýsingarnar á bestu vinkonu sína til öryggis. Hún baktryggði allt.

„Og síðan þegar kom að foreldrum mínum þá sagði ég þeim ekki allt. Ég vissi einfaldlega að elsku mamma myndi fá taugaáfall ef ég segði þeim alla söguna; ef hún vissi að ég væri að fara ein til Texas að hitta einhvern mann sem ég hafði verið að tala við á netinu.“

Hún sagði foreldrum sínum ekki sannleikann strax. Þeim var sagt að þau hefðu hist í Reykjavík þegar hann hefði verið á heræfingu í Evrópu. Hann sagði foreldrum sínum að þau hefðu hist á South Padre Island í Texas.

Við vorum bæði með okkar sögu og á endanum var þetta orðið svo flókið að við urðum bara að segja sannleikann.

Tíu dagar í Texas

Í september 2022 flaug Eydís út. Hún lenti fyrst í Denver og þaðan í Austin, þar sem J.D. beið hennar á flugvellinum.

„Ég kom niður rúllustiga og sá hann standa þarna, rosalega hávaxinn og myndarlegan. Ég hafði ekki alveg gert mér grein fyrir því hvað hann væri hávaxinn. Það var samt ekkert vandræðalegt. Við gengum rakleitt hvort að öðru og kysstumst. Þetta var bara einhvern veginn svo rétt.“

Síðan tóku við tíu dagar í Texas.

„Það var magnað hvað þetta small allt saman hjá okkur. Það var bara eins og við hefðum alltaf verið saman. Hann sýndi mér alls konar staði. Það er gaman að segja frá því að við höfðum ekki planað að ég myndi hitta alla fjölskylduna hans í fyrstu ferðinni. Við höfðum planað að fara í hádegisdeit til foreldra hans. En á degi tvö sagði hann: „Bróðir minn býr hérna nálægt, ég ætla að sýna þér húsið hans.“ Við keyrum fram hjá húsinu og ég sé allt í einu alla fjölskylduna hans þar. Hann leit á mig og sagði: „I am so sorry.“ Hann hafði bara ætlað að keyra þarna fram hjá með mér, en svo var bara öll fjölskyldan þarna fyrir algjöra tilviljun. Þarna hitti ég systkini hans, foreldra hans, bræður hans og alla. Þau voru yndisleg og tóku mér opnum örmum.“

Heimferðin var síðan allt annað en auðveld.

Ég grét í flugvélinni eins og stunginn grís. Á þessum tímapunkti vorum við ekki búin að setja formlegan stimpil á sambandið, en við vissum bæði að þetta væri eitthvað meira.

Bónorð í Mosfellsbæ

Næstu þrjú ár einkenndust af fjarsambandi, flugmiðum og símtölum. Eydís fór reglulega til Texas og J.D. kom til Íslands á hverju ári. Þess á milli héldu þau sambandinu gangandi í gegnum símann.

J.D og Eydís fóru saman til Parísar stuttu eftir fyrstu ferð Eydísar til Texas.Aðsend

„Það var auðvitað bara eina leiðin okkar til að vera nálægt og halda sambandinu gangandi. Við vorum að spjalla og senda skilaboð allan daginn.“

Árið 2025 var Eydís úti í Texas frá maí og fram í ágúst. Þá höfðu þau verið í fjarsambandi í þrjú ár.

„Og þá vorum við bæði komin á þann stað að við gátum ekki verið að flakka svona endalaust svona á milli. Við vissum að við vildum vera saman og við vorum svona „semi“ búin að ákveða að við myndum gifta okkur. Ég vissi bara að ég vildi vera með þessum manni að eilífu. Ég var korter í þrítugt og okkur langaði að eignast börn og byrja lífið okkar saman. Ég átti á þessum tíma eftir tvö ár eftir í hjúkrunarfræðinni, en ég vissi að ég gæti sett það nám á pásu og flutt út.“

J.D hefur reglulega komið í heimsókn til Íslands.Aðsend

Í september 2025 kom J.D. aftur til Íslands. Eydís átti þá þrítugsafmæli og þau höfðu rætt hjónaband. Hún hafði þó gert honum skýrt að bónorðið mætti ekki vera opinbert.

„Ég vildi hafa þetta mjög prívat. Hann veit líka að ég elska náttúruna og hverfið mitt í Mosfellsbænum.“

Hann stakk upp á göngutúr, sem Eydísi þótti grunsamlegt, enda hafði hún yfirleitt þurft að draga hann með sér í slíkar ferðir. Þau gengu að hólum þar sem sást yfir Esjuna og hestar voru fyrir neðan. Þar fór J.D. á skeljarnar. Bróðir hennar hafði elt þau í leyni og tók myndir.

„Við eigum ótrúlega fallegar myndir af bónorðinu. Þetta var draumabónorð.“

Daginn eftir var búið að skipuleggja óvænt þrítugsafmæli fyrir Eydísi heima hjá systur hennar.

„Ég hélt að við værum bara að fara út að borða. Svo mættum við heim til systur minnar, þar sem allir biðu og þegar við komum inn þá hrópuðu allir: „Surprise!“ Þarna vorum við ekki búin að segja neinum frá bónorðinu daginn áður. Þannig að ég notaði tækifærið og sagði á móti: „Surprise!“ og sýndi þeim svo hringinn!“

@eydishelgaa 🥹😭❤️‍🔥🦦. #fyp #gellurstyðjagellur #islensktiktok #loml #trend ♬ original sound - scale

Langt og flókið ferli

Upphaflega ætluðu þau að gifta sig í Bandaríkjunum en biðin eftir réttu vegabréfsárituninni gat tekið sex til tólf mánuði. Lögfræðingur ráðlagði þeim að gifta sig frekar á Íslandi.

Mánuði eftir bónorðið giftu þau sig síðan við litla athöfn heima hjá foreldrum Eydísar. Aðeins nánasta fjölskylda var viðstödd. Foreldrar J.D. og systir komu honum á óvart og flugu til Íslands, þótt þau hefðu aldrei áður komið til Evrópu.

Eydís og J.D gengu í hjónaband við litla og innilega athöfn á Íslandi í nóvember síðastliðnum.Aðsend

Eftir brúðkaupið hófst svo löng og flókin pappírsvinna í Bandaríkjunum.

„Við fengum okkur lögfræðing strax, eiginlega áður en ég kom út, af því þetta er allt svo yfirþyrmandi. Þetta er langt, flókið og dýrt ferli, en við vildum frekar eyða peningunum í lögfræðing og auka líkurnar á að þetta gengi vel.“

Með þvottabirni og íkorna í bakgarðinum

Í dag búa Eydís og J.D. í rótgrónu hverfi í San Antonio í Texas. Og það væsir ekki um þau, þau búa í rúmlega 200 fermetra einbýlishúsi með fimm svefnherbergjum.

Húsnæðismarkaðurinn í Texas er, vægast sagt, ekki sambærilegur húsnæðismarkaðnum á Íslandi. Eydís segir húsið hafa kostað á við eitt hesthús á Íslandi.

Íslenski fáninn blaktir fyrir utan hús hjónanna í San Antonio.Aðsend

„Þar sem J.D. er í hernum þá fær hann mjög góð lánakjör. Afborganirnar eru mjög viðráðanlegar og vextirnir eru allt aðrir en á Íslandi. Þetta hús kostaði á við eitt hesthús á Íslandi. Til samanburðar þá búa foreldrar mínir í venjulegu húsi í Mosfellsbæ. Þegar ég sagði J.D. að húsið þeirra gæti selst á 130 milljónir í dag varð hann orðlaus. Hérna úti gætirðu keypt lúxusvillu fyrir þann pening.“

Í garðinum eru þvottabirnir, pokarottur og íkornar. Sumrin geta orðið gríðarlega heit og hitinn farið upp í 45 gráður. Eydís segir að það sé ekki að ástæðulausu sem sagt sé að allt sé stærra í Texas.

„Himininn er stærri í Texas, án djóks. Fólkið, bílarnir, húsin, bara allt. 

Ég trúði þessu ekki fyrr en ég kom hingað í fyrsta skipti. 

Svo er það maturinn. Það er rosalega góður matur hérna í Texas, endalaust úrval og auðvitað risastórar skammtastærðir. Mér finnst maturinn á Íslandi samt almennt miklu hollari og ég á miklu auðveldara með að halda mér í eðlilegri þyngd þar. Hér er ofurunninn og óhollur matur svo aðgengilegur, og það er svo sannarlega ekki erfitt að bæta á sig aukakílóum!“

@eydishelgaa we don’t have any critters back home🥹🦝🦨💖 #fyp #fyrirþig #gellurstyðjagellur #texas #wildlife ♬ original sound - Flower Child Darlene

Námskeið í æðruleysi

J.D er liðþjálfi (e. sergeant) hjá þjóðvarðliðinu í Texas, sem þýðir að hann ber ábyrgð á þjálfun, aga, framkvæmd verkefna og velferð hermanna. Hann er núna á sínu áttunda ári í hernum.

Það fylgir því ýmislegt að vera gift hermanni.Aðsend

„Þetta var auðvitað mjög framandi fyrst; ég kem frá Íslandi, þar sem er ekkert stríð og enginn her. J.D. ákvað mjög ungur að fara í herinn og það var út af föðurlandsást. Það er eitt sem ég hef þurft að venjast við Bandaríkin: þessa endalausu ást fólks á landinu sínu. J.D. segir alltaf að hann myndi deyja fyrir landið sitt. Hann ákvað ungur að hann vildi taka þátt og gefa af sér. Þetta var hans leið til þess.“

Lífið með hermanni hefur líka kennt henni þolinmæði.

„Ef það er ein regla með bandaríska herinn þá er það að þú hefur enga stjórn þegar kemur að vinnunni. Ef það er eitthvað sem ég hef lært af því að vera í sambandi með hermanni þá er það æðruleysi og þolinmæði, og að sleppa tökunum á því sem ég get ekki stjórnað, sem ég, verandi kvíðapési, hef haft mjög gott af. 

Núna er þetta bara „Jesus, take the wheel“ eins og fólk segir hérna úti.

Fékk létt sjokk við matarborðið

Talið berst að menningarmismuninum í Texas og á Íslandi. Sá munur er nefnilega töluverður.

„Ég get til dæmis nefnt deitmenninguna. Deitmenningin hér er einfaldlega allt öðruvísi. Svo eru mennirnir hérna voða miklir herramenn. Ég opna til dæmis ekki dyr hérna úti. Ég snerti ekki bílhurðir. Ég kem mér sjálf út úr bílum af því ég nenni ekki að bíða eftir honum þegar ég er að fara út, en hann opnar allar dyr fyrir mér og opnar bíldyr fyrir mér. Jafnvel þegar ég er ein, þá opna karlar hér dyr fyrir konum. Ef ég er á leiðinni inn í búð og það er maður á undan mér, þá stoppar hann og opnar dyrnar. Fyrst hugsaði ég bara: „Hvað ertu að gera?“ En maður er mjög fljótur að venjast þessu.“

Hún nefnir einnig trúmál.

„Það er eitthvað sem tók mig alveg góðan tíma að venjast af því að trú er oft svo mikið tabú á Íslandi og mjög persónuleg. Fólk er ekki mikið að tala um trú við hvert annað á Íslandi. Hér talar fólk hins vegar miklu meira opinskátt um trúna sína. Fjölskylda J.D er trúuð, þau eru „non-denominational“, sem þýðir í rauninni að þau fylgja ekki neinni sérstakri undirgrein kristninnar, heldur trúa bara á Guð, Jesú og heilagan anda. 

Það var alveg smá sjokk fyrir mig fyrst að fjölskyldan hans og hann ólust upp við það að biðja borðbæn fyrir kvöldmat. Ég man að mér fannst þetta óþægilegt og skrítið fyrstu tvær ferðirnar. Ég kom náttúrulega bara úr þessari dæmigerðu íslensku fjölskyldu sem fer aldrei í kirkju nema þegar það eru brúðkaup eða jarðarfarir. En svo vandist ég þessu eins og öllu öðru.“

Eydís og J.D giftu sig eftir þrjú ár af stöðugu flakki á milli Íslands og Bandaríkjanna.Aðsend

Algengar ranghugmyndir

Þetta eru vissulega áhugaverðir tímar að lifa á í Bandaríkjunum.

„Ég geri mér svo sannarlega grein fyrir því að ég kem frá ríku, hvítu landi og að ég er hvít kona í forréttindastöðu. En ég vil samt benda á að fólk er oft með mjög bjagaða mynd af Bandaríkjunum, og þá sérstaklega Texas, og mér finnst dálítið leiðinlegt þegar fólk sem hefur kannski aldrei komið hingað er með miklar ranghugmyndir um landið og fólkið. Það sem fólk sér og heyrir og les um á fréttamiðlum og samfélagsmiðlum er allt þetta neikvæða.

En það er líka svo ótrúlega margt jákvætt og gott við að búa í Bandaríkjunum. Ég elska að búa hér. Fólkið sem ég hef hitt er ótrúlega indælt og ég hef aldrei orðið vör við það sem fréttirnar láta mann oft halda. Mér finnst áberandi mikill náungakærleikur hérna, þétt samfélag og fólki þykir vænt um landið sitt og hugsar svo vel um hvort annað. 

Ég hef aldrei upplifað mig jafn örugga og hér.

Það eru ákveðnir hlutir sem Eydís saknar svo sannarlega ekki frá Íslandi.

„Eins og til dæmis þetta vinnubrjálæði; þetta norm að drekkja sér í vinnu, skóla og öllu. Að vera fastur í þessu hamstrahjóli. Svo er annað við Ísland, það er hjarðhegðunin. Að vera fastur í því að gera það sama og vilja það sama og allir aðrir. Ég er ekki að segja þetta til að dæma neinn, af því að ég var sjálf föst í þessari hugsun á sínum tíma. Á Íslandi þekkja allir alla og maður er svo upptekinn af því að hugsa og pæla í hvað öðrum finnst og maður þorir ekki að skera sig úr,“ segir hún.

@eydishelgaa komið memmér í WALMART👹🤝🏼 #walmart #shopping #iceland #texas #sanantonio #ísland #ísland🇮🇸 #fyrirþig #fyrirþigsíða #fyp #fyppppppppppppppppppppppp #fypシ゚viral #icelandic #girly ♬ original sound - Eydís Helga Gunnarsdóttir

„Gallinn er auðvitað samt sá að allt fólkið mitt, fjölskylda og vinir eru á Íslandi og ég sakna þeirra alveg hrikalega mikið. En það vill samt svo til að við búum í stóru húsi hérna úti og getum tekið á móti gestum hvenær sem er. Foreldrar mínir komu í heimsókn núna í apríl síðastliðnum. Þá gáfu þau okkur íslenskan fána sem blaktir núna fyrir framan húsið. Við erum að fá vinapar í heimsókn eftir mánuð og í haust kemur vinkona mín. Allir á Íslandi eru voða spenntir að koma í heimsókn. Svo saknar maður auðvitað íslenska sumarsins; að sitja úti í garði til miðnættis og það er ennþá bjart. Það er ekkert sem toppar það.“

Nýtt líf

„Núna er staðan þannig að ég er að bíða eftir að vera kölluð í viðtal og vona að það sé síðasta skrefið,“ segir Eydís, sem í dag heitir Eydís Helga Gunnarsdóttir Chacon.

Ef allt gengur upp verður hún komin með græna kortið í lok árs. Eftir tvö til þrjú ár getur hún síðan sótt um bandarískan ríkisborgararétt.

Eydís er alsæl í Bandaríkjunum og sér svo sannarlega ekki eftir því að hafa elt ástina vestur um haf.Aðsend

„Þangað til er ég í ferðabanni og má ekki fara út fyrir Bandaríkin og má heldur ekki vinna í Bandaríkjunum. Það er auðvitað dálítið sérstakt og ekki sérstaklega auðvelt að vera í þessum aðstæðum, en ég kvarta samt ekki.“

Og hún sér allra síst eftir því að hafa tekið sénsinn á sínum tíma og elt ástina.

„Ég er allt önnur manneskja í dag en áður. Fjölskyldan mín og vinkonur mínar hafa líka tekið eftir því; þau sjá hvað ég er búin að blómstra, hvað mér líður vel og hvað J.D. hefur gert mér gott. Fyrst voru allir auðvitað: „Ertu í alvörunni að fara að gera þetta?“ Núna elska þau J.D og samgleðjast mér. Á þeim tíma þegar ég kynntist J.D. var ég eiginlega bara komin í svakalega mikla kulnun, var í tveimur vinnum og krefjandi námi og var bara alveg við það að brenna út. Svo hefur auðvitað mikið gengið á síðustu þrjú ár. Núna er ég eiginlega bara að stilla af taugakerfið og jafna mig og njóta lífsins hérna í Texas. 

En ég geri mér líka alveg grein fyrir því að það er algjör blessun að fá að vera heima, slappa af og lifa góðu lífi. Það er ekki sjálfgefið.

Hún sér þó fyrir sér að búa á Íslandi einhvern tímann í framtíðinni.

„Ég kem til með að klára hjúkrunarfræðina einhvern tímann eftir nokkur ár, annaðhvort í fjarnámi eða í skóla hér í Bandaríkjunum, en mér liggur ekkert á því. Núna erum við að stefna á barneignir. Hér úti er í rauninni ekkert fæðingarorlof eins og heima og það hentar okkur þess vegna vel að ég geti verið heimavinnandi. Okkur langar samt að búa á Íslandi í framtíðinni og gefa börnunum okkar tækifæri á að því að alast upp þar. En það kemur seinna. Eins og staðan er núna þá er ég ofboðslega sátt við að vera hérna úti.“

#endaði #fann #texas #tinder #ástina


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262893611d/fann-astina-a-tinder-og-endadi-i-texas

📰 Aðrar fréttir

Hafi nauðgað með­vitundar­lausri sambýliskonunni - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Hafi nauðgað með­vitundar­lausri sambýliskonunni - Vísir
Þetta segir í ákæru á hendur manninum, sem gefin var út í júlí. Fyrirtaka verður í máli Héraðssaksóknara á hendur honum fyrir Héraðsdómi Suðurlands á ...
Unnur Lilja lýsir skelfilegu atviki í útskriftarferð FG – „Maður hugsar alltaf - Þetta gerist ekki við mig“
📅 21.10.2026 👁️ 0
Unnur Lilja lýsir skelfilegu atviki í útskriftarferð FG – „Maður hugsar alltaf - Þetta gerist ekki við mig“
Unnur Lilja Andrésdóttir lýsir skelfilegri reynslu sem hún varð fyrir í útskriftarferð í Portúgal. Fimm menn króuðu hana af á skemmtistað.Unnur Lilja ...
Skattur á milljarðamæringa á kjörseðlinum
📅 21.10.2026 👁️ 0
Skattur á milljarðamæringa á kjörseðlinum
Skattur á milljarðamæringa á kjörseðlinum Kjós­endur í Kali­forníu greiða atkvæði um fimm pró­senta skatt á hreina eign um 200 millj­arða­mær­inga. Be...
Smyrill í Norðurmýrinni
📅 21.10.2026 👁️ 0
Smyrill í Norðurmýrinni
Íbúar í Norðurmýri urðu varir við smyril í hverfinu í morgun. Ýr Jóhannsdóttir gekk fram á fuglinn á horni Gunnarsbrautar og Flókagötu á leið sinni ti...
At­vinnu­leysi dróst saman - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
At­vinnu­leysi dróst saman - Vísir
Þeim sem voru án atvinnu fækkaði milli mánaða en í ágúst mældist atvinnuleysi 6,8 prósent. Árstíðarleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 1,1 prósentust...
Masked boy guilty of trying to murder schoolgirl in Norfolk
📅 21.10.2026 👁️ 0
Masked boy guilty of trying to murder schoolgirl in Norfolk
The school went into lockdown and parents gathered at the gates as they waited for news about their children.
Töpuðu bar­daganum, lið­þjálfanum og prestinum - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Töpuðu bar­daganum, lið­þjálfanum og prestinum - Vísir
Pistillinn birtist í Morgunblaðinu í dag undir fyrirsögninni „Opið bréf til óþekktra aðila“, tæpri viku eftir að Jón yfirgaf þingflokk Viðreisnar. Han...
Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það - Vísir
Garpur var skipað þeim hjónum Daða Frey og Árnýju Fjólu en í liði Þróttar mættu þau Hákon Jóhannesson og tónlistarkonan Bríet. Umræða skapaðist um íþr...
Hlaðvarpið True Crime Ísland eins árs – lögfræðingar segja frá íslenskum sakamálum
📅 21.10.2026 👁️ 0
Hlaðvarpið True Crime Ísland eins árs – lögfræðingar segja frá íslenskum sakamálum
Hlaðvarpið True Crime Ísland eins árs – lögfræðingar segja frá íslenskum sakamálum Fréttin21. október 2026Fréttatilkynning, InnlentLeave a Comment Ann...
Sænskur glæpa­foringi á­kærður fyrir þrjú morð - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Sænskur glæpa­foringi á­kærður fyrir þrjú morð - Vísir
Ildar „Örvar“ (e. Scar) Galiyev er meðal annars sagður bera ábyrgð á sprengjutilræði í Uppsölum sem varð 24 ára gamalli konu að bana, morði á átján ár...
Vill losna við blaða­menn og fá sund­laug í staðinn - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Vill losna við blaða­menn og fá sund­laug í staðinn - Vísir
Ekkert varð af því en samkvæmt heimildum blaðamanna New York Times hafði forsetinn lagt þetta nokkrum sinnum til á mánuðunum áður en hún lét af störfu...
Tíma­mót hjá Árna Má - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Tíma­mót hjá Árna Má - Vísir
Árni rak lengi vel Gallery Port sem lokaði í vor eftir áratug í rekstri. Hann ætlar að fagna þessum nýja kafla með pomp og prakt en vinnustofan er í H...
Witkoff kominn til Rússlands með friðartillögur – Pútín tekur á móti erindreka Trumps
📅 21.10.2026 👁️ 0
Witkoff kominn til Rússlands með friðartillögur – Pútín tekur á móti erindreka Trumps
Witkoff kominn til Rússlands með friðartillögur – Pútín tekur á móti erindreka Trumps Fréttin21. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Comm...
Gagnrýnir frumraun Kylie Jenner hjá Victoria’s Secret og fyrirtækið harðlega: „Hún er ekki með líkama fyrirsætu“
📅 21.10.2026 👁️ 0
Gagnrýnir frumraun Kylie Jenner hjá Victoria’s Secret og fyrirtækið harðlega: „Hún er ekki með líkama fyrirsætu“
Adrianne Curry gagnrýndi Victoria’s Secret-tískusýninguna harðlega fyrir að fá Kylie Jenner til að koma fram á sýningunni á sunnudagskvöldið, og sagði...
Þórður Snær: stál, byrlun og leki
📅 21.10.2026 👁️ 1
Þórður Snær: stál, byrlun og leki
Þórður Snær: stál, byrlun og leki Fréttin21. október 2026Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Comment Þórður Snær Júlíusson. Páll Vilhjálmsson...
Mögnuð breyting á systrunum - Hafa misst samtals um 300 kíló
📅 21.10.2026 👁️ 0
Mögnuð breyting á systrunum - Hafa misst samtals um 300 kíló
Það er ótrúlegur munur á systrunum Amy og Tammy Slaton, en þeim hefur báðum tekist að léttast gífurlega og lifa heilsusamlegra lífi.Systurnar eru stjö...
Sí­fellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Sí­fellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman - Vísir
Norðurhjálp hefur það sem af er þessu ári afhent einstaklingum og fjölskyldum í fjárhagsvanda bónuskort til matarinnkaupa að verðmæti yfir tuttugu mil...
Lexíur og leikhúsið
📅 21.10.2026 👁️ 1
Lexíur og leikhúsið
Lexíur og leikhúsið Sigríður Jóns­dóttir skrifar um Högg eftir James Graham, sem sýnt er í Þjóð­leik­hús­inu. Högg er enskt verð­launa­leik­rit eftir ...
Mokað allan liðlangan daginn
📅 21.10.2026 👁️ 0
Mokað allan liðlangan daginn
Framkvæmdir við dýpkun í Hafnarfjarðarhöfn hafa staðið yfir frá í fyrravetur. Næsta sumar mun ný smábátahöfn líta dagsins ljós og breytir ásýnd hafnar...
Íbúðareigendur í Gufunesi verulega ósáttir - Áttu ekki von á nýju húsi svo nálægt sínu
📅 21.10.2026 👁️ 0
Íbúðareigendur í Gufunesi verulega ósáttir - Áttu ekki von á nýju húsi svo nálægt sínu
Eigendur íbúða í fjölbýlishúsinu að Jöfursbási 5b, í Gufunesi í Reykjavík, eru verulega ósáttir við byggingu nýs fjölbýlishúss á næstu lóð við þeirra ...
Starfsfólk Orkunnar dælir eldsneyti til styrktar Bleiku slaufunni
📅 21.10.2026 👁️ 0
Starfsfólk Orkunnar dælir eldsneyti til styrktar Bleiku slaufunni
Starfsfólk Orkunnar tekur þátt í Bleika deginum í dag, miðvikudaginn 21. október, þegar þau taka yfir eldsneytisdælurnar á Orkustöðinni við Dalveg mil...
Elliði svarar Jasminu: „Ég veit ekki til þess að þú hafir valdið neinum skaða“
📅 21.10.2026 👁️ 0
Elliði svarar Jasminu: „Ég veit ekki til þess að þú hafir valdið neinum skaða“
Segja má að samfélagsmiðlar hafi logað eftir ummæli Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss, í garð múslima. Í gærkvöldi steig Jasmina Vajzovic, fyrrve...
Framlengja gæsluvarðhald yfir fjórum sakborningum í stórum fíkniefnamálum
📅 21.10.2026 👁️ 0
Framlengja gæsluvarðhald yfir fjórum sakborningum í stórum fíkniefnamálum
Landsréttur staðfesti á föstudag og mánudag þrjá úrskurði Héraðsdóms Reykjaness og einn úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um gæsluvarðhald yfir mönnum se...
Frakkar í vanda: Vextir hækka
📅 21.10.2026 👁️ 1
Frakkar í vanda: Vextir hækka
Frakkar í vanda: Vextir hækka Nið­ur­skurður í opin­berum útgjöldum er helsta kveikja mót­mæla Frakka, en ófriður eykur á vand­ann. Vaxta­á­lag á Frak...
Stephen Hubbard: Russia frees US citizen Stephen Hubbard, state media reports
📅 21.10.2026 👁️ 0
Stephen Hubbard: Russia frees US citizen Stephen Hubbard, state media reports
Stephen Hubbard has been taken to Pulkovo Airport, Putin said during talks with US envoy Steve Witkoff.
US citizen Stephen Hubbard freed by Russia and 'on his way home', Trumps says
📅 21.10.2026 👁️ 0
US citizen Stephen Hubbard freed by Russia and 'on his way home', Trumps says
The former teacher has been released without any "swap" required, according to the president.
Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal - Vísir
Unnur Lilja var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni um þessa árás. Hún segir algengt að það komi upp einhver atvik í fjölmennum útskriftarferðum og að fó...
Skoða áætlunar­siglingar milli Skot­lands og Ís­lands - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Skoða áætlunar­siglingar milli Skot­lands og Ís­lands - Vísir
Skoskir fjölmiðlar greina frá þessu og segja viðræður vera hafnar milli Múlaþings og hafnaryfirvalda í Aberdeen. Þá sé ónefnt fyrirtæki búið að sýna s...
UK weather: Amber warning issued by Met Office ahead of Storm Austen
📅 21.10.2026 👁️ 0
UK weather: Amber warning issued by Met Office ahead of Storm Austen
The deep area of low pressure is expected to move close to the south of the UK early on Friday with south-west England set to bear the brunt.
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvað vill unga fólkið okkar verða?
📅 21.10.2026 👁️ 0
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvað vill unga fólkið okkar verða?
Það þarf heilt þorp til að ala upp barn. En hvaða fyrirmyndir býður þorpið upp á?Hverju myndi tíu ára barn svara ef við spyrðum það í dag: „Hvað langa...
Jón Gnarr lýsir töpuðum bardaga: „Það hefur því miður verið fátt um svör“
📅 21.10.2026 👁️ 0
Jón Gnarr lýsir töpuðum bardaga: „Það hefur því miður verið fátt um svör“
Jón Gnarr segir að sig hafi skort stuðning í pólitískri baráttu sinni og að hann hafi jafnvel farið að efast um hvort nokkur raunveruleg áætlun væri t...
Telur allt ógirt land tekið eignar­námi með dómi - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Telur allt ógirt land tekið eignar­námi með dómi - Vísir
Landeigendurnir stefndu Fjarðabyggð og kröfðust þess að skaðabótaskylda sveitarfélagsins yrði viðurkennd. Töldu þeir að lög um afréttarmálefni og fjal...
Þingkonan missti báða fætur eftir á­rásina - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Þingkonan missti báða fætur eftir á­rásina - Vísir
Toyota Land Cruiser-jeppa var ekið á Helen Haines, óháðan þingmann á ástralska þinginu, í heimabæ hennar Wangaratta á mánudag. Vitni sögðu að ökumaður...
Spá „hættulegri“ hlýnun um 2,8 gráður í heiminum
📅 21.10.2026 👁️ 0
Spá „hættulegri“ hlýnun um 2,8 gráður í heiminum
Spá „hættulegri“ hlýnun um 2,8 gráður í heiminum Vonin um að halda hlýnun undir 1,5 gráðum frá því fyrir iðn­bylt­ingu er „horfin“, segja Sam­ein­uðu ...
Hvalfjarðargöng lokuðust stutta stund vegna bilaðs bíls
📅 21.10.2026 👁️ 0
Hvalfjarðargöng lokuðust stutta stund vegna bilaðs bíls
Hvalfjarðargöngum var lokað á níunda tímanum vegna bilaðs bíls í göngunum. Búið er að opna þau aftur Tilkynnt var um lokunina á vef Vegagerðarinnar kl...
Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus - Vísir
Danól og Bónus hefja hrekkjavökugleðina snemma í ár. Búið er að reisa sérstaka Haribo-kastala í tveimur verslunum Bónus, á Smáratorgi og í Miðhrauni. ...
Hval­fjarðar­göng opin á nýjan leik - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Hval­fjarðar­göng opin á nýjan leik - Vísir
Lokað var fyrir umferð um Hvalfjarðargöng vegna bifreiðar sem bilaði í göngunum um klukkan átta í morgun. Klukkan 8.48 voru göngin opnuð að nýju.
Viðræður hafnar um ferju milli Seyðisfjarðar og Aberdeen
📅 21.10.2026 👁️ 1
Viðræður hafnar um ferju milli Seyðisfjarðar og Aberdeen
Til skoðunar er að koma á siglingum á milli borgarinnar Aberdeen í Skotlandi og Seyðisfjarðar. Sveitarfélagið á í viðræðum við hafnaryfirvöld þar í la...
Bukangi: Huge crowds watch shark stranded in Busan, South Korea
📅 21.10.2026 👁️ 0
Bukangi: Huge crowds watch shark stranded in Busan, South Korea
A third attempt has been made to guide the 9ft 10in (3m) shark back to the open sea.
Hefur misst 90 kíló en það er einn hængur á
📅 21.10.2026 👁️ 1
Hefur misst 90 kíló en það er einn hængur á
Bandaríski leikarinn John Goodman, sem er meðal annars þekktur fyrir leik sinn í Roseanne, The Big Lebowski og The Righteous Gemstones, hefur misst rú...
Opnar sig loksins um hvað réði úrslitum um flutninginn aftur til Bretlands
📅 21.10.2026 👁️ 0
Opnar sig loksins um hvað réði úrslitum um flutninginn aftur til Bretlands
Harry prins flutti aftur til Bretlands ásamt eiginkonu sinni, Meghan Markle, og börnum þeirra tveimur til að skapa „tækifæri fyrir fjölskylduna.“„Að g...
Helen Haines: Australian MP loses both legs after alleged car attack
📅 21.10.2026 👁️ 0
Helen Haines: Australian MP loses both legs after alleged car attack
Her alleged attacker, 43-year-old Brendan Nugent, faces multiple charges and appeared in court for the first time on Wednesday.
Helen Haines: Australian MP loses both legs after alleged car attack, husband says
📅 21.10.2026 👁️ 1
Helen Haines: Australian MP loses both legs after alleged car attack, husband says
Her alleged attacker, 43-year-old Brendan Nugent, faces multiple charges and appeared in court for the first time on Wednesday.
Man charged after Hackney attacks on three Jewish women
📅 21.10.2026 👁️ 1
Man charged after Hackney attacks on three Jewish women
The women suffered minor injuries when they were assaulted at Clapton Common, police say.
Missti báða fætur eftir árásina
📅 21.10.2026 👁️ 1
Missti báða fætur eftir árásina
Ástralskur þingmaður sem keyrt var á í fyrradag missti báða fætur. Læknar sem gerðu aðgerð á henni töldu nauðsynlegt að fjarlægja þá báða.Phil Haines,...
Missti báða fótleggi eftir árásina
📅 21.10.2026 👁️ 0
Missti báða fótleggi eftir árásina
Ástralskur þingmaður sem keyrt var á í fyrradag missti báða fótleggi. Læknar sem gerðu aðgerð á henni töldu nauðsynlegt að fjarlægja þá báða.Phil Hain...
Nýi sómalski þingmaðurinn í Svíþjóð er með stóran hala skulda og svika á eftir sér – Fær þingmannalaun þó hann tilkynni sig veikan og láti ekki ná í sig
📅 21.10.2026 👁️ 0
Nýi sómalski þingmaðurinn í Svíþjóð er með stóran hala skulda og svika á eftir sér – Fær þingmannalaun þó hann tilkynni sig veikan og láti ekki ná í sig
Mohamed Abdukardir Ali, nýkjörinn þingmaður sænska Vinstriflokksins, fær þingmannsgreiðslur þótt hann hafi enn ekki hafið störf á þinginu. Á sama tíma...
Animal rights group Peta asks Crystal Palace to retire bald eagle mascot
📅 21.10.2026 👁️ 0
Animal rights group Peta asks Crystal Palace to retire bald eagle mascot
Animal rights group Peta is urging Crystal Palace to retire their bald eagle mascot, saying a "bright stadium filled with boisterous fans is no place ...
Víða hálka á vegum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Víða hálka á vegum
Vegfarendur ættu að hafa varann á sér því víða er hálka eða snjóþekja á vegum úti. Einnig er hálka á vissum stöðum á höfuðborgarsvæðinu.Fram kemur á u...
Skafið og saltað - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Skafið og saltað - Vísir
Skil liggja yfir og við Austfirði sem rignir úr og líklega slydda til fjalla. Síðar í dag koma skilin lengra inn á land og fylgir þeim heldur svalara ...