Færri með fjárhagsaðstoð en fleiri hjá barnavernd
Ný ársskýrsla velferðarsviðs Reykjavíkurborgar sýnir að færri nutu fjárhagsaðstoðar í fyrra en árið á undan. Einnig fækkaði í hópi flóttafólks með þjónustu frá borginni. Fleiri beiðnir bárust skólaþjónustu sem og tilkynningar til barnaverndar.
Fjöldi þeirra sem fékk þjónustu frá velferðarsviði í fyrra var 20.595 og er það tæplega eitt prósent hækkun milli ára. Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu velferðarsvið Reykjavíkurborgar. Þar segir að hópurinn hafi farið hratt vaxandi síðustu tíu ár sem stafi að miklu leyti af fjölgun þeirra sem hljóta alþjóðlega vernd á Íslandi.
Þrír af fjórum með íslenskt ríkisfang
Kynjahlutfall notenda skiptist þannig að karlar eru 51 prósent notenda, konur 49 prósent notenda og kynsegin 0,1 prósent notenda. Í skýrslunni segir að hópur kynsegin fólks sé of fámennur til að greina með tölfræðilegum hætti.
Flestir notendur eru með íslenskt ríkisfang, 75 prósent. 18 prósent notenda eru með erlent ríkisfang utan EES-svæðisins og 7 prósent eru með erlent ríkisfang innan EES. Hlutfallið hefur haldist mjög svipað síðan 2023 en árið 2022 voru áttatíu prósent notenda með íslenskt ríkisfang og 14 prósent utan EES.
