Eyvindur Erlendsson er fallinn frá

Mynd: Mynd: Shutterstock
Leikstjórinn Eyvindur Erlendsson er látinn, 89 ára að aldri. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði 6. maí síðastliðinn.
Morgunblaðið greinir frá andláti hans.
Eyvindur fæddist í Grindavík 14. febrúar 1937 og ólst upp í Dalsmynni í Biskupstungum. Hann lauk sveinsprófi í húsgagnasmíði frá Iðnskólanum á Selfossi árið 1959, nam við Myndlistarskólann í Reykjavík og útskrifaðist síðar með BA-próf í leikstjórn frá Leiklistarháskólanum í Moskvu árið 1967. Eyvindur starfaði um áratugaskeið sem leikstjóri, leikari, rithöfundur, þýðandi og myndlistarmaður.
Eiginkona hans var Sjöfn Halldórsdóttir, sem lést árið 2018. Þau eignuðust saman fimm börn.