Berglind Svavarsdóttir lögmaður á Lögfræðistofu Reykjavíkur svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hún spurningu frá
Hæ Berglind.
Þegar maki hefur fengið slysabætur og leggur fram hluta af þeim í útborgun á bíl og hjólhýsi, er það flokkað undir hjúskaparlög? eða séreign? Nú hefur maki lagt töluvert af þessum peningum í rekstur heimilis eins og að greiða upp eitthvað af skuldum og keypt bíl þar sem hann lagði tvær milljónir í útborgun og svo tók parið sameiginlegt bílalán fyrir restinni sem þau borguðu bæði af. Þessar tvær milljónir sem fóru í útborgun upp í bílinn, hvernig eru þær flokkaðar? Þarf að selja bílinn ef makinn vill fá þessar tvær milljónir til baka?
Kveðja,
G
Sæl G.
Eignir hjóna skiptast i hjúskapareignir og séreignir sem geta verið samningsbundnar eða lögmæltar. Meginreglan í hjúskaparrétti er sú að eignir sem hjón eiga eða eignast í hjúskap verða hjúskapareignir og koma almennt til helmingaskipta við andlát eða skilnað.
Ef hjón vilja hafa annan háttinn á verður að gera kaupmála þar sem eignir eru gerðar að séreignum. Samkvæmt 102. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993 getur maki krafist þess að ýmsar fébætur, þ.á.m. slysabætur, komi ekki til skipta við skilnað að því gefnu að þau verðmæti séu enn til staðar á viðmiðunardegi skipta og verði sérgreind sbr. einnig 3. mgr. 18. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993.
Ef unnt væri að sanna að tilurð tveggja milljóna króna framlags til bílakaupa væru slysabætur væri væntanlega unnt að krefjast þess að sú fjárhæð stæði utan skipta. Þá færi eftir eigna- og skuldastöðu bús hvernig eignum yrði endanlega skipt á milli aðila og hvort nauðsynlegt yrði að selja eignir til að jafna þau skipti.
Kveðja,
Berglind Svavarsdóttir, lögmaður.
Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Berglindi og öðrum lögmönnum á Lögfræðistofu Reykjavíkur spurningu HÉR.