Þeir sem lentu í árekstri á þjóðveginum við Mývatn í gær voru erlendir ferðamenn. Þetta segir Heimir Harðarson, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, aðspurður.
Þrír slösuðust í tveggja bíla árekstrinum, þ.e. ökumenn bílanna og einn farþegi. Voru bílarnir mikið skemmdir og óökufærir eftir áreksturinn.
Hefði geta verið verra
Heimir segir að slysið hefði getað orðið miklu verra. „Allt var þetta það sem við segjum að séu minniháttar meiðsli. Ég held að allir aðilar hafi einfaldlega labbað upp í sjúkrabílana og þau fóru í skoðun á bráðamóttökunni,“ segir Heimir.
Í vetur varð annað slys skammt frá slysstaðnum þegar erlendur ferðamaður ók út af veginum.