„Öflug hæð suður af landinu heldur áfram að stýra veðrinu hjá okkur og valda þrálátri vætu vestantil á landinu, en miklum hlýindum fyrir austan,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.
Hiti verður á bilinu 11 til 24 stig í dag. Áfram verður hlýjast fyrir austan en skýjað með köflum. Búast má við að veðrið þar haldist eins þar til seinni hluta vikunnar. Þá mun hæðin hörfa til suðurs og lægð hreiðra um sig norðaustur af landinu sem beinir mun svalara lofti úr norðri yfir landið. Þar af leiðandi á að kólna talsvert á Norður- og Austurlandi á föstudag. Sunnan heiða verður áfram milt.
Rigning eða súld verður á vestanverðu landinu í dag og dálítil rigning sums staðar norðaustantil síðdegis. Seinnipartinn dregur úr úrkomu. Vestlæg átt 5 til 15 og hvassast norðvestantil og suðaustanlands.
„Það verður hins vegar fagnaðarefni fyrir marga að fá að njóta sólarinnar loksins aftur vestantil á landinu um næstu helgi ef að líkum lætur,“ skrifar veðurfræðingur.
Á höfuðborgarsvæðinu verður áfram dálítil súld og úrkoma eykst síðdegis. Hiti á bilinu 10 til 13 stig. Suðvestan átt 5 til 10.
Búast má við svipuðu veðri á morgun en hlýnar og birtir til sums staðar á Norðvesturlandi.