Algengt er að barnaníðingar nýti sér samskiptamiðilinn Snapchat til að komast í kynni við börn. DV hefur nú undir höndum ákæru héraðssaksóknara gegn manni sem ákærður er fyrir nettælingu og kynferðislega áreitni gegn barni , á tímabilinu ágúst 2020 til október sama ár.Maðurinn er annars vegar sakaður um að hafa sett sig í samband í nokkur skipti við 12 ára stúlku í gegnum Snapchat og eftir atvikum í gegnum aðra samfélagsmiðla, og mælt sér mót við barnið í því skyni að áreita það kynferðislega.
Enn einn Snapchat-perrinn – Mælti sér mót við 12 ára barn