Formlegar meirihlutaviðræður Samfylkingar og óháðra í Suðurnesjabæ og Sjálfstæðisflokks og óháðra hafa gengið vel og enginn málefnalegur ágreiningur hefur komið upp í viðræðum enn sem komið er. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Svavari Grétarssyni, oddvita S-listans, og Hauki Andreassyni, oddvita Sjálfstæðismanna.
Báðir flokkar hafi lagt áherslu á að vanda vel til verks til að styrkja stöðu Suðurnesjabæjar og vinna áfram að sameiningu byggðakjarnanna tveggja, Sandgerðis og Garðs, í Suðurnesjabæ.
„Ef sami taktur heldur áfram í viðræðunum má gera ráð fyrir því að málefnasamningur verði tilbúinn í næstu viku þar sem helstu verkefni kjörtímabilsins munu liggja fyrir ásamt skiptingu hlutverka og nefnda.“
Flokkarnir halda því áfram samstarfi frá síðasta kjörtímabili, sem hófst um mitt kjörtímabil eftir að meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins sprakk. Þriðji flokkurinn í samstarfinu, O-listinn, bauð ekki fram að þessu sinni.
S-listinn bætti við sig einum fulltrúa í nýafstöðnum kosningum og er með þrjá. Sjálfstæðisflokkurinn missti einn og er með tvo. Framsóknarflokkurinn hélt sínum tveimur og Miðflokkurinn fékk tvo.