Þetta staðfestir Sævar Guðmundsson aðalvarðstjóri á lögreglustöð 2 en hann segir fleiri hafa verið við lögreglustöðina á Hverfisgötu þegar málið átti sér stað á áttunda tímanum í gærkvöld. Voru nokkrir yfirheyrðir og sem fyrr segir tveir handteknir og vistaðir í fangaklefa.
Sævar segir áflogin hafa verið „stimpingar sem undu upp á sig“ og í rauninni ekki mjög alvarleg. Brotaþoli kom í afgreiðsluna á lögreglustöðinni með skurð á fingri og rifin föt en árásarmaður hafði dregið upp hníf eftir að handalögmál brutust út.
Snerist ósættið sem fyrr segir um skuld eða þjófnað sem var óuppgerður mannanna á milli og voru þeir yfirheyrðir áður en þeim var sleppt í morgun og málin lokað að sinni, staðfestir Sævar.
Veistu meira um málið? Eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot.
Veistu meira um málið? Eða ertu með aðrar ábendingar? Sendu okkur fréttaskot.