Þar segir meðal annars að ekki sé hægt að fullyrða að hin tímabundna lækkun á virðisaukaskatti sem gekk í gildi í sumarbyrjun hafi skilað sér að fullu til neytenda. Við heyrum einnig í formanni FÍB.
Þá segjum við frá að unnið sé að því að smíða nýtt kerfi um ráðstöfun séreignar á húsnæðilán. Nýtt fyrirkomulag tekur gildi 1. október og er þá gert ráð fyrir að fólk muni geta kannað í nýju kerfi hvort það eigi inni einhvern rétt.
Að auki fjöllum við um áskorun fjögurra náttúruverndarsamtaka sem öll krefjast þess að hvalveiðar verði stöðvaðar sem fyrst.
Í sportinu förum við yfir úrslitin á HM og hitum upp fyrir risaleik hjá landsliðinu í körfubolta.