Síðustu vikur hefur Meining á Rás 1 fjallað um hinsegin bakslagið í íslensku samfélagi og skoðað áhrif þess á líf og líðan hinsegin fólks. Í fimmta þætti var hatursorðræða skoðuð, meðal annars áhrif hennar frá félagslegu sjónarhorni.
Í sjötta þætti er haldið áfram að fjalla um hatursorðræðu gagnvart hinsegin fólki og reynt að greina hvort hún hafi aukist eða ekki. Samkvæmt 233. grein (a) almennra hegningarlaga er refsivert að ráðast opinberlega á mann eða hóp manna, vegna þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar, með háði, rógi, smánun eða ógnun. Háttsemin getur varðað sektum eða fangelsi allt að tveimur árum.
21 ákæra á 26 árum
Samkvæmt ríkissaksóknara hefur verið gefin út 21 ákæra er varðar þessa tilteknu grein á síðustu 26 árum eða frá ársbyrjun 2000 til 30. júní 2026. Gyða Stefánsdóttir, aðstoðarsaksóknari hjá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu segir færslur á Facebook og athugasemdir undir færslum annarra á Facebook flokkast undir opinberan vettvang. Hún segir lögreglu þó ekki fara í frumkvæðisrannsóknir á hatursorðræðu á netinu.
„Við erum ekki með neitt markvisst eftirlit með hatursorðræðu. Við rannsökum mál þegar þau eru tilkynnt til okkar, hvort sem það er í formi formlegrar tilkynningar eða kæru. Okkur ber skylda til að rannsaka þegar við fáum upplýsingar um mögulega saknæma háttsemi,“ segir Gyða í þættinum sem hægt er að hlusta á hér fyrir neðan.
Kærum er sem sagt fylgt eftir en Gyða segir internetið vera stórt og ómögulegt að hafa markvisst eftirlit með því.
„En þetta eru auðvitað hegningarlagabrot, eru alvarleg brot og þetta er samfélagsmein.“
Gyða segir sönnunarmatið í hatursorðræðumálum geta verið flókið og ekki sé ákært í málum nema það sé líklegt til sakfellis. Athugasemdirnar þurfi að eiga við 233. grein almennra hegningarlaga, þær þurfi að vera opinberar og veitast að hópum sem njóta verndar samkvæmt ákvæðinu.
Fólk átti sig ekki á að ummæli geti verið refsiverð
Halldóra Þorsteinsdóttir, héraðsdómari og dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, segir að þrátt fyrir að kveðið sé á um tveggja ára fangelsisdóm í hegningarlögum hafi almennt verið litið svo á að það teljist ósamrýmanlegt tjáningarfrelsisákvæði stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu að beita fangelsisrefsingum vegna tjáningar. Sektum sé því almennt beitt í slíkum málum og þar sem sektarfjárhæð sé undir áfrýjunarfjárhæð séu dómar ekki birtir. Það kunni að skýra að fólk átti sig ekki endilega á að geta þurft sæta ákæru vegna ummæla sem fela í sér hatursorðræðu. Fleiri slík mál reki á fjörur dómstóla en fólk almennt átti sig á.
„Enda er ég ekki viss um að sektin sé það erfiðasta, það er auðvitað ekki sómi að því að vera með dóm fyrir hatursorðræðu á bakinu,“ segir Halldóra í þættinum.
Halldóra telur að almenn upplifun fólks sé að orðræðan fari versnandi en það geti tengst því að einstaklingar hafi fengið meira vald yfir umræðunni með tilkomu samfélagsmiðla. En það megi ekki gleyma því að tjáningarfrelsið er mjög ríkt og mikið þurfi almennt til að koma til þess að það sé skert.
„Lögin ná ekki yfir allt sem getur verið móðgandi eða særandi. Það er ekki hægt að láta lögin taka til alls sem sagt er. Lögin setja ákveðin mörk en koma ekki í staðinn fyrir almenna ábyrgð, skynsemi og tillitsemi í umræðunni.“
Stundum þurfi að tala um þungbæra hluti
Halldóra segir að fólk átti sig stundum ekki á að ummæli þeirra og athugasemdir á netinu séu refsiverð.
„Fólk ætlar sér ekki að hlutir séu túlkaðir á þennan hátt. Það er bak við lyklaborðið, svolítið falið, þá er auðveldara að láta gamminn geysa. Ég held að fólk hafi lent í því að að sjá hreinlega eftir því að hafa viðhaft ummæli sem voru særandi.“
Aðrir standi með ummælum sínum og segi að þau séu skoðun sem eigi rétt á sér.
„Og stundum er það þannig. Við getum ekki sett undir þennan hatt öll ummæli sem kunna að vera móðgandi eða umræðu sem einhver getur orðið særður vegna. Stundum þurfum við að tala um hluti sem einhverjum eru þungbærir,“ segir Halldóra og ítrekar að hatursorðræða séu ummæli sem þurfi að fela í sér ákveðna fyrirlitningu, óbeit, fordæmingu eða vera þeirrar gerðar að þau hvetji til ofbeldis gegn ákveðnum hópum eða hvetji til mismununar.
Er „trans er ekki til“ hatursorðræða?
Til þess að skilja betur muninn á þessu; réttmætum skoðunum og hatursorðræðu, ber þáttastjórnandi ummæli sem hún fann við einfalda skoðun á samfélagsmiðlum undir Halldóru og biður hana um að meta hvort þetta séu refsiverð ummæli í skilningi laganna. Halldóra segist eingöngu geta gert það í hófsemi og með varann á, hún geti rætt hlutina í almennu og hlutlægu samhengi. Hún vilji hins vegar ekki taka fyrir einstök ummæli enda fari mjög eftir atvikum hverju sinni hvernig þau horfa við lögunum.
Í þættinum eru nokkur ummæli lesin upp. Meðal annars ummæli um regnbogafánann, sem kallaður er „blætisfáninn“ og tengdur við „barnagirnd.“
Halldóra tengir ummælin barnagirnd við dóm hæstaréttar þar sem ummæli í tengslum við hinseginfræðslu í skólum, orð eins og barnaníð og kynvilla, voru dæmd sem hatursorðræða.
Þá er Halldóra spurð út í staðhæfingar sem sjást reglulega á samfélagsmiðlum um að trans fólk sé ekki til. Þáttastjórnandi spyr hvernig íslensk lög líti við slíkum staðhæfingum og Halldóra segir mikinn mun á því að segja að „eitthvað sé svona“ eða segja „mér finnst.“
„Um leið og þú ert farinn að fullyrða þá ert farinn fjær því að hafa skoðun sem þér er frjálst að viðhafa í umræðunni,“ segir Halldóra en bætir við að til þess að greina þetta sem hatursorðræðu þurfi að skoða framsetningu ummæla og atvik að öðru leyti. Hvort verið sé að viðra ólíkar skoðanir og ræða hlutina málefnalega eða hvort um sé að ræða hatur, fordæmingu og smánun.
„Er annað sagt með sem sýnir að viðkomandi er ekki með fordæmingu, fyrirlitningu eða smánun. Eða er þetta sett fram í þeim stíl.“
Halldóra segir þó að alla jafna sé erfitt að skilgreina svona fullyrðingu sem skoðun.
„Ef þú ert að fullyrða um eitthvað tiltekið, þá er það ólíklegra til að vera talið bara þín skoðun. En aftur getur skipt máli hvort þú ert að beina fullyrðingunni að einhverjum tilteknum eða óskilgreindum hópi. Þetta þarf alltaf að skoðast hverju sinni.“
Fréttinni hefur verið breytt.