Dóttir leikarans Charlie Sheen, Sami Sheen, hafnar sögusögnum um að frægur faðir hennar fjármagni lúxuslíf hennar og þakkar OnlyFans fyrir velgengni sína.„Sjáðu til, ef ég ætti peningana hans pabba, þá myndi ég gangast við því. Ég myndi láta ykkur vita,“ sagði hún í TikTok myndbandi á laugardaginn í svari við athugasemd um að faðir hennar sæi henni farborða.„Þessar athugasemdir gera mig svo pirraða því þessi maður hefur ekki gefið mér krónu í meira en fjögur ár. Ég hef séð fyrir mér að fullu síðan ég var 18 ára..“
Ekki á spenanum hjá pabba og sér fyrir sér með OnlyFans - „Þessi brjóst keyptu húsið“