Ekkert fararsnið á Starmer

Ekkert fararsnið á Starmer

Ekkert fararsnið á Starmer

Nú lokum við fréttavakt dagsins en fyrst skulum við fara yfir þau atriði sem hafa komið fram í dag.

  • Fjórir undirráðherrar hafa sagt sig úr stjórn Keir Starmers, forsætisráðherra Bretlands.
  • Hátt í hundrað þingmenn Verkamannaflokksins skora á leiðtoga sinn Keir Starmer að segja af sér eftir sögulega slakt gengi flokksins í sveitarstjórnarkosningum í síðustu viku.
  • Alls eru 86 þingmenn sem hafa farið fram á afsögn Starmers.
  • Starmer ætlar þó ekki að láta af embætti forsætisráðherra. Prófessor í stjórnmálafræði segir það hans mesta styrkleika að það sé enginn augljós arftaki innan flokksins.

Hér fyrir neðan má nálgast umfjöllun kvöldfrétta um málið.

John Curtice, prófessor í stjórnmálafræði og stjórnmálaskýrandi hjá BBC segir það vera helsta styrk Keirs Starmers sem stendur að enginn hafi skorað hann á hólm í kjöri um leiðtogasætið.

Mögulegir frambjóðendur sem hafi verið í umræðunni séu Wes Streeting heilbrigðisráðherra, Angela Rayner. fyrrverandi varaforsætisráðherra og borgarstjóri Manchester, Andy Burnham, sem ekki á sæti á þingi.

Stuðningsmenn Streeting vilja að Starmer hætti strax en stuðningsmenn Burnham, aftur á móti, vilja að það verði leiðtogakjör í september. Þeir vona að í millitíðinni geti borgarstjórinn mögulega tryggt sér sæti á þingi í svokölluðum aukakosningum. Curtice telur að þessi sundrung geti mögulega verið vatn á myllu Starmers þannig að hann geti setið aðeins lengur. Samkvæmt reglum Verkamannaflokksins verður einhver að skora leiðtoga flokksins formlega á hólm og safna ákveðnum fjölda undirskrifta til að hægt verði að boða til leiðtogakjörs.

Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður ræddi við Curtice í dag. Hluta viðtalsins má lesa hér fyrir neðan. Eins verður viðtal við hann í sjónvarpsfréttum klukkan 19:00.

Yfir 100 þingmenn Verkamannaflokksins hafa í dag lýst yfir stuðningi við Keir Starmer. Í sameiginlegri yfirlýsingu þeirra segir að ekki sé rétti tíminn núna fyrir baráttu um leiðtogasætið.

Vinna við að endurheimta traust kjósenda þurfi að byrja í dag og að flokkurinn þurfi allur að vinna saman að þeim breytingum sem þurfi að verða.

Fjöldi þeirra þingmanna sem fara fram á afsögn Starmers er kominn í 86. Snemma í morgun voru þeir um 70 en hefur fjölgað eftir því sem liðið hefur á daginn. Sjálfur segist Starmer ekki á förum, hann og flokkurinn hafi verið kjörin til að leiða landið og það ætli þau að gera.

Zubir Ahmed, undirráðherra í stjórn Starmers, greindi frá afsögn sinni síðdegis. Hann hefur verið í heilbrigðisráðuneytinu. Þar með bætist hann í hóp þriggja annarra undirráðherra sem hafa sagt af sér í dag í mótmælaskyni við að Keir Starmer ætli að vera áfram í embætti.

Ahmed birti afsagnarbréf sitt á samfélagsmiðlinum X og í því sagði að ljóst væri að almenningur hefði misst alla tiltrú á Starmer í embætti forsætisráðherra.

Alex Davies-Jones undirráðherra (e. junior minister) í dómsmálaráðuneyti Bretlands hefur tilkynnt afsögn sína. Hún er þriðji undirráðherrann í morgun sem tilkynnir slíkt.

Í afsagnarbréfi sínu sem hún birti á samfélagsmiðlinum X segir hún að Verkamannaflokkurinn hafi beðið þess í 14 ár að komast til valda til að bæta líf landsmanna. Nú sé tími róttækra aðgerða.

„Ég sárbæni þig um að vinna í þágu hagsmuna landsins og gefa út áætlun um brottför þína úr embætti,“ segir Davies-Jones í uppsagnarbréfinu.

Jess Phillips hefur sagt af sér sem undirráðherra málaflokks sem verndar viðkvæma hópa, sérstaklega konur og börn, gegn misnotkun og ofbeldi.

Í yfirlýsingu sakar Phillips Keir Starmer um að standa í vegi fyrir löggjöf sem hefði komið í veg fyrir að börn taki nektarmyndir á síma sína. Hún segir Starmer góðan og vel meinandi mann sem sé þó ekki nógu sterkur leiðtogi.

Hún er annar undirráðherrann (e. junior minister) til að segja af sér í dag, en í frétt Guardian segir að afsögn Phillips megi sjá sem hluta af skipulagðri herferð stuðningsmanna Wes Streeting heilbrigðisráðherra til að knýja á um leiðtogakjör í Verkamannaflokknum.

81 af þingmönnum Verkamannaflokksins hafa nú opinberlega lýst því yfir að þeir vilji að Starmer annaðhvort fari strax úr embætti eða leggi fram tímaáætlun um brottför sína. Fyrr í morgun var talan um 70 þingmenn og því ljóst að þrýstingur á hann hefur aukist eftir því sem liðið hefur á daginn.

Síðasti þingmaðurinn til að láta í ljós þessa skoðun sína er Lizzi Collinge sem segir í yfirlýsingu að það sé ljóst að forsætisráðherrann hafi misst alla tiltrú landsmanna.

Það þurfa einmitt 81 þingmaður að samþykkja kröfu um leiðtogakjör innan Verkamannaflokksins til að það geti farið fram.

Ferlið yrði þannig að einhver þingmanna flokksins myndi skora á leiðtogann, bjóða sig fram gegn honum, svo þyrfti undirskriftir 81 þingmanns til að efnt yrði til leiðtogakjörs. Enn sem komið er hefur enginn skorað formlega á leiðtoga flokksins, Starmer.

Kötturinn Larry sem býr í Downingstræti 10 hefur kíkt út í morgun og blandað geði við nokkra af þeim fjölmörgu fjölmiðlamönnum sem hafa verið þar og beðið tíðinda. Larry virðist hinn allra rólegasti þó að það sé titringur innan ríkisstjórnarinnar sem fundaði í Downingstræti í morgun.

Síðasta áratuginn hafa verið sex forsætisráðherrar og sumir segja að Larry hafi á þessum tíma verið tákn um stöðugleika í húsinu enda ekki á förum. Larry hefur búið í Downingstræti síðan 2011 og kom þangað fyrst í tíð Davids Camerons. Áður bjó Larry í dýraathvarfi.

Þegar rætt er um hver ætti að taka við af Starmer sem leiðtogi Verkamannaflokksins kemur nafn Andy Burnhams stundum upp. Hann er borgarstjóri Manchester og sá sem margir sjá sem vænlegasta kostinn til að leiða flokkinn fari Starmer frá. Staðan er hins vegar sú að Burnham á ekki sæti á þingi og myndi því ekki vera kjörgengur yrði blásið til leiðtogakjörs innan Verkamannaflokksins.

Burnham gerði tilraun til að komast á þing í byrjun árs þegar sæti í fulltrúadeild þingsins var laust en framkvæmdastjórn Verkamannaflokksins kom í veg fyrir það. Stuðningsmenn Burnhams sökuðu Starmer og hans helstu bandamenn um tilraunir til að halda Burnham í hæfilegri fjarlægð.

Burnham bauð sig fram í leiðtogasæti flokksin 2015 og laut þá í lægra haldi fyrir Jeremy Corbyn. Hann fór af þingi 2017 og varð borgarstjóri Manchester en hefur síðan verið áhrifamikill meðal þeirra sem teljast til vinstri vængs og miðju innan flokksins.

Nokkrir þeirra ráðherra sem styðja Starmer hafa rætt við fjölmiðlamenn eftir fundinn. Ráðherra vinnu- og eftirlaunamála, Pat McFadden, er einn þeirra. Hann segir Starmer ætla að halda áfram í sínu embætti eins og hann ætti að gera og eins og almenningur búist við að hann geri. „Og ég ætla að halda áfram með mitt starf.“

Þegar McFadden var spurður hvort einhver hefði mótmælt forsætisráðherranum á fundinum sagði hann að margir hefðu látið í ljós stuðning sinn.

Heilbrigðisráðherrann Wes Streeting svaraði ekki spurningum blaðamanna. Vangaveltur hafa verið um það síðustu daga hvort hann hafi hug á að bjóða sig fram til leiðtoga Verkamannaflokksins.

Ráðherrar ríkisstjórnar Keirs Starmers eru nú á leið út af fundi í Downingstræti 10. Reuters hefur eftir Steve Reed húsnæðismálaráðherra að ríkisstjórnin ætli að halda áfram með verkefni sín. Viðskiptaráðherrann Peter Kyle sagði Starmer sýna mikla staðfestu.

Tvö ár eru síðan Verkamannaflokkurinn vann sigur í þingkosningum og síðustu mánuði hefur óánægja með störf Starmers aukist. Stjórnmálaskýrandi BBC, Rob Watson, var spurður í hlaðvarpinu Global News Podcast í morgun hvað hafi farið úrskeiðis eftir sigurinn 2024. Watson sagði ljóst að gott gengi 2024 megi frekar skýra með óánægju með 14 ára valdatíð Íhaldsflokksins en endilega mikilli ánægju með Starmer og Verkamannaflokkinn.

Það er einkum tvennt sem Watson telur skýra óánægjuölduna núna. Í fyrsta lagi líki fólki einfaldlega ekki við Starmer. Í öðru lagi hafi kjósendum verið lofað breytingum í aðdraganda kosninga 2024. Ef til vill segi einhverjir það ósanngjarnt af kjósendum en að mörgum þeirra finnist eins og þessar breytingar hafi ekki orðið að veruleika. Fólk sé reitt í dag og hafi reyndar líka verið reitt fyrir kosningarnar 2024.

Breska forsætisráðuneytið hefur tilkynnt um nokkra punkta sem hafa komið fram í samræðum Starmers við ráðherra sína á fundi sem stendur yfir. Hér fyrir neðan eru nokkrir þeirra:

„Eins og ég sagði í gær þá tek ég ábyrgð á niðurstöðum kosninganna og ég tek ábyrgð á því að koma í gegn þeim breytingum sem við lofuðum.“

„Það eru ferlar innan Verkamannaflokksins til að skipta um leiðtoga og þeir hafa ekki enn verið virkjaðir.“

„Þjóðin býst við því af okkur að við höldum áfram að stjórna. Það er það sem ég er að gera og það er það sem við sem ríkisstjórn verðum að gera.“

Hluti þingmanna Verkamannaflokksins vill fá að kjósa sér nýjan leiðtoga. Til að fá slíka kosningu í gegn þarf samþykki 81 þingmanns flokksins. Alls eru þingmenn flokksins 403. Þegar hafa yfir 70 þingmenn hvatt Starmer ýmist til að fara frá strax eða fara að leggja drög að því.

Catherine West, þingmaður Verkamannaflokksins, tilkynnti í gær að hún ætli að safna undirskriftum þingmanna til að hvetja Starmer til að boða til leiðtogakjörs í september. Þessu lýsti hún yfir eftir ræðu Starmers til flokksmanna í gærmorgun.

Hún sagði að ýmsar góðar hugmyndir hefðu komið fram í ræðunni en að þær hefðu komið fram of seint og væru ekki nóg. Hún hvatti hann til að segja strax af sér embætti forsætisráðherra.

Hart hefur verið sótt að Keir Starmer, leiðtoga Verkamannaflokksins og forsætisráðherra Bretlands, síðustu daga eftir slakt gengi í sveitarstjórnarkosningum í síðustu viku. Fundur ríkisstjórnar hans er að byrja.

Einn undirráðherra í ríkisstjórn Starmers, Miatta Fahnbulleh, sagði af sér í morgun. Hún hvetur Starmer til að gefa út tímaáætlun um brottför sína úr embætti. Þá hafa 70 þingmenn Verkamannaflokksins ýmist hvatt Starmer til að segja af sér eða fara að leggja drög að brottför sinni úr embætti.

Ég heiti Dagný Hulda Erlendsdóttir og ætla hér að greina frá helstu tíðindum úr Downingstræti 10 þennan morguninn.

#ekkert #fararsnið #starmer


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-05-12-ekkert-fararsnid-a-starmer-474804

📰 Aðrar fréttir

Vegir lokast vegna vatnavaxta
📅 01.10.2026 👁️ 0
Vegir lokast vegna vatnavaxta
Rigningar síðustu daga eru farnar að valda skemmdum á vegum á suðaustanverðu landinu.Þórsmerkurvegi var lokað fyrir umferð milli Nauthúsagils og Jökul...
Lögreglan hafði betur gegn skipverja Bandero í deilu um farsíma
📅 01.10.2026 👁️ 0
Lögreglan hafði betur gegn skipverja Bandero í deilu um farsíma
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem kröfu skipverja Bandero, um að fá haldlagningu aflétt af farsíma sínum, var hafnað.
Rússar hugðust myrða Kasparov í sumar – „Ég mun hvorki láta staðar numið né fela mig“
📅 01.10.2026 👁️ 0
Rússar hugðust myrða Kasparov í sumar – „Ég mun hvorki láta staðar numið né fela mig“
Garry Kasparov, fyrrverandi heimsmeistari í skák, hefur brugðist við fregnum af áætlunum Rússa til þess að ráða hann og fleiri andófsmenn af dögum í s...
Hörður boðar óvænt til starfsmannafundar
📅 01.10.2026 👁️ 0
Hörður boðar óvænt til starfsmannafundar
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, hefur óvænt boðað til starfsmannafundar hjá fyrirtækinu eftir hádegi í dag. Frá þessu greina Vísir og mbl.i...
Fannst nakinn á látinni 93 ára konu – Súdanskur hælisleitandi gunaður um nauðgun og morð
📅 01.10.2026 👁️ 0
Fannst nakinn á látinni 93 ára konu – Súdanskur hælisleitandi gunaður um nauðgun og morð
34 ára súdanskur flóttamaður hefur verið settur í gæsluvarðhald í Frakklandi, grunaður um að hafa nauðgað og myrt 93 ára konu á heimili hennar í Toulo...
Rannsókn: 44 prósent demókrata sætta sig við ofbeldi til að stöðva Trump
📅 01.10.2026 👁️ 0
Rannsókn: 44 prósent demókrata sætta sig við ofbeldi til að stöðva Trump
Rannsókn: 44 prósent demókrata sætta sig við ofbeldi til að stöðva Trump Fréttin1. október 2026Erlent, TrumpLeave a Comment Fjórðungur bandarískra ful...
Hörður boðar starfsmannafund hjá Landsvirkjun
📅 01.10.2026 👁️ 0
Hörður boðar starfsmannafund hjá Landsvirkjun
Boðað hefur verið til starfsmannafundar hjá Landsvirkjun eftir hádegi. Vísir greindi fyrst frá fundinum og sagði að Hörður Arnarson forstjóri hefði bo...
Jagtar Singh Johal: Scot detained in India freed on bail after nine years in prison
📅 01.10.2026 👁️ 0
Jagtar Singh Johal: Scot detained in India freed on bail after nine years in prison
The Sikh activist from Dumbarton was arrested in 2017 in connection with alleged terror offences.
Fjórir grunaðir um að flytja inn fimm kíló af amfetamíni með póstsendingu
📅 01.10.2026 👁️ 0
Fjórir grunaðir um að flytja inn fimm kíló af amfetamíni með póstsendingu
Fjórir karlmenn eru grunaðir um að hafa flutt fimm kíló af amfetamíni til landsins með hraðsendingu frá Þýskalandi. Þrír þeirra voru handteknir í byrj...
„Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri til­viljun“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
„Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri til­viljun“ - Vísir
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar greindi frá málinu í færslu á Facebook og skrifar að kærunefnd útboðsmála hafi úrskurðað útboðið ólöglegt...
Lil Wayne trú­lofaður 03-módeli - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Lil Wayne trú­lofaður 03-módeli - Vísir
Lil Wayne, sem heitir réttu nafni Dwayne Michael Carter Jr., virtist staðfesta trúlofunina í myndbandi sem birtist á Instagram-síðu rapparans B.G.  í ...
Rúmlega 200 nýjar íbúðir í Hafnarfirði staðið tómar í meira en ár
📅 01.10.2026 👁️ 0
Rúmlega 200 nýjar íbúðir í Hafnarfirði staðið tómar í meira en ár
Samkvæmt upplýsingum frá HMS eru alls tæplega 460 nýjar íbúðir til sölu í Hafnarfirði, töluvert fleiri en í Kópavogi, 190, og Garðabæ, 286, en þó ekki...
Góðar og slæmar fréttir í skýrslu landlæknis um sýklalyfjanotkun
📅 01.10.2026 👁️ 0
Góðar og slæmar fréttir í skýrslu landlæknis um sýklalyfjanotkun
Anna Margrét Halldórsdóttir, yfirlæknir á sviði sóttvarnalæknis, segir slæmar og góðar fréttir að finna í ársskýrslu landlæknis um sýklalyfjanotkun á ...
Æskuvinur hins látna sagður hafa skuldað honum milljónir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Æskuvinur hins látna sagður hafa skuldað honum milljónir
Æskuvinur portúgalska mannsins sem fannst látinn á heimili sínu í Kársnesi í Kópavogi í nóvember í fyrra skuldaði honum milljónir vegna fíkniefnaviðsk...
Snið­ganga geti verið túlkuð sem yfir­lýsing ríkis­stjórnarinnar - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Snið­ganga geti verið túlkuð sem yfir­lýsing ríkis­stjórnarinnar - Vísir
Sex af níu stjórnarmönnum beindu því til útvarpsstjóra á fundi í gær að tilkynna Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, að RÚV tæki ekki þátt í Euro...
Er Ísland að fara að taka þátt í Eurovision?
📅 01.10.2026 👁️ 0
Er Ísland að fara að taka þátt í Eurovision?
Á stjórnarfundi RÚV í gær var lögð fram bókun um að beina þeim tilmælum til útvarpsstjóra að hann tilkynni EBU, Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva, að...
Yfirlæknir og deildarstjóri: „Við skorum á aðstandendur Kveiks að gera nýjan þátt“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Yfirlæknir og deildarstjóri: „Við skorum á aðstandendur Kveiks að gera nýjan þátt“
Yfirlæknir og deildarstjóri á Landspítala gera athugasemdir við þátt Kveiks á RÚV þar sem fjallað var um notkun sterkra geðlyfja á hjúkrunarheimilum. ...
Fjórir í gæslu­varðhald eftir hrað­sendingu frá Þýska­landi - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Fjórir í gæslu­varðhald eftir hrað­sendingu frá Þýska­landi - Vísir
Í tilkynningu frá lögreglunni segir að þeir verði í gæsluvarðhaldi næstu fjórar vikur, eða til 28. október. Málið varðar innflutning á fimm kílóum af ...
Four flights diverted due to thick fog at Tenerife North Airport
📅 01.10.2026 👁️ 0
Four flights diverted due to thick fog at Tenerife North Airport
Thick fog has disrupted operations at Tenerife North Airport this morning (Thursday), forcing four incoming flights to divert because of poor visibili...
Trump's AI rebrand causes 'unprecedented' demand for Slovenian website names
📅 01.10.2026 👁️ 0
Trump's AI rebrand causes 'unprecedented' demand for Slovenian website names
The president wants AI to be called super intelligence - or SI - the same initials used by Slovenian domains.
Ekkert svig­rúm í tengslum við kjara­samninga og tví­sýnt með fram­haldið - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Ekkert svig­rúm í tengslum við kjara­samninga og tví­sýnt með fram­haldið - Vísir
Einnig verður rætt við oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi, sem segir að útboð vegna byggingar stúku við Kórinn, sem nú hefur verið dæmt ólöglegt, be...
Lét á­kærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu upp­námi“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Lét á­kærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu upp­námi“ - Vísir
Aðalmeðferð í málinu hófst á þriðjudag og hélt vitnaleiðsla áfram í dag. Ntentes hefur þegar gefið skýrslu fyrir dómi auk þess sem hann hefur sætt gæs...
Snið­ganga banda­menn á NATO-fundum - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Snið­ganga banda­menn á NATO-fundum - Vísir
Fundurinn á að vera haldinn í Póllandi seinna í október en á meðal þeirra sem hafa ekki fengið boð á hann eru Frakkar, Bretar og ríkisstjórnir Eystras...
Themed hotels are expanding international offerings in the Canary Islands
📅 01.10.2026 👁️ 0
Themed hotels are expanding international offerings in the Canary Islands
Hotels in the Canary Islands are evolving. Distinctive architecture and nature-led experiences are giving holidaymakers more choice, while offering im...
Matthías Már með krabbamein: „Barátta sem við ætlum að sigra“
📅 01.10.2026 👁️ 0
Matthías Már með krabbamein: „Barátta sem við ætlum að sigra“
Matthías Már Magnússon, útvarpsmaður og dagskrárstjóri Rásar 2, greinir frá því á Facebook-síðu að hann hafi greinst með krabbamein á dögunum. Fram un...
Össur hjólar í Hildi og kallar hana „prinsessuna á bauninni“ – Sakaður um „aumkunarverða“ karlrembu
📅 01.10.2026 👁️ 0
Össur hjólar í Hildi og kallar hana „prinsessuna á bauninni“ – Sakaður um „aumkunarverða“ karlrembu
Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, fer hörðum orðum um Hildi Sverrisdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, í pistli á Facebook-s...
Jónas Már gagnrýnir dýrt klúður Kópavogsbæjar í Kórnum – „Mikill asi var í kringum afgreiðslu málsins“
📅 01.10.2026 👁️ 0
Jónas Már gagnrýnir dýrt klúður Kópavogsbæjar í Kórnum – „Mikill asi var í kringum afgreiðslu málsins“
Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingar í Kópavogi, gagnrýnir klúðrið varðandi útboð knattspyrnustúku við Kórinn. Algjör óvissa ríkir um framhaldið o...
„Það er sannar­lega ó­þarfi að mygla inni“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
„Það er sannar­lega ó­þarfi að mygla inni“ - Vísir
Hjörleifur Björnsson skrúðgarðyrkjufræðingur, einn eigendanna, leggur áherslu á að hugsa um garðinn og fasteignina í heild. Mikilvægasta verkið sé nef...
Leggst gegn eigin stólakaupum: „Ég hef sjálf setið makindalega í þeim í átta ár“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Leggst gegn eigin stólakaupum: „Ég hef sjálf setið makindalega í þeim í átta ár“
Leggst gegn eigin stólakaupum: „Ég hef sjálf setið makindalega í þeim í átta ár“ Borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur, Hild­ur Björns­dótt­ir, leggst gegn stó...
Taxý Hönter segir „Dýrlinginn“ hafa reynt að lokka ungar stúlkur upp í bíl
📅 01.10.2026 👁️ 0
Taxý Hönter segir „Dýrlinginn“ hafa reynt að lokka ungar stúlkur upp í bíl
Friðrik Einarsson, betur þekktur sem Taxý Hönter, segist hafa séð leigubílstjórann Saint Paul Edeh, sem hann kallar „Heilagan Pál“ eða „Dýrlinginn“, r...
Matthías Már með krabba­mein - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Matthías Már með krabba­mein - Vísir
Matthías greindi frá tíðindunum á Facebook nú í morgun. „Fyrir tveim vikum endaði ég á Bráðamóttökunni sökum orkuleysis, var einhvern veginn alveg búi...
Risa­stór tappakollur í fal­legri í­búð - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Risa­stór tappakollur í fal­legri í­búð - Vísir
Sindri fór fyrst í heimsókn til hennar fyrir 12 árum eða árið 2014 en núna er hann mættur aftur og það á nýjan stað. Þau hjónin ákváðu að minnka við s...
What happened in failed execution of Christa Pike - and what next?
📅 01.10.2026 👁️ 0
What happened in failed execution of Christa Pike - and what next?
The convicted killer is in hospital in Tennessee after surviving two lethal injections, in a case that has raised many questions.
Ísland fellur um tvö sæti í nýsköpunarvísitölu
📅 01.10.2026 👁️ 0
Ísland fellur um tvö sæti í nýsköpunarvísitölu
Ísland féll um tvö sæti í nýútgefinni nýsköpunarvísitölu Alþjóðahugverkastofnunarinnar og hefur fallið um níu sæti á fimm árum.Ísland er í 26. sæti en...
Travelodge failed Maidenhead sex assault victim 'at every stage'
📅 01.10.2026 👁️ 1
Travelodge failed Maidenhead sex assault victim 'at every stage'
The review comes after a woman spoke out after being assaulted in a Maidenhead hotel.
Allt í hnút á Norður-Írlandi
📅 01.10.2026 👁️ 2
Allt í hnút á Norður-Írlandi
Sólveig Jónsdóttir, stjórnmálafræðingur og rithöfundur, er ekki bjartsýn á framtíð heimastjórnarinnar á Norður-Írlandi eftir að deilur blossuðu upp um...
Breiðhyltingum blöskrar ruslið í Iðufelli – „Það er skömm að þessu“
📅 01.10.2026 👁️ 2
Breiðhyltingum blöskrar ruslið í Iðufelli – „Það er skömm að þessu“
Íbúum í Breiðholtshverfinu í Reykjavík blöskrar ruslið og bílflökin sem hafa safnast upp við Iðufelli 14. Heilbrigðiseftirlitið hyggst hafa samband vi...
Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins
📅 01.10.2026 👁️ 0
Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins
Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins Glúmur BaldvinssonGlúmur er afar ósáttur við Ríkisútvarpið Mynd: Facebook Glúmur Ba...
Launakröfur flugvirkja í engum takti við stöðu hagkerfisins
📅 01.10.2026 👁️ 2
Launakröfur flugvirkja í engum takti við stöðu hagkerfisins
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir liggja á að finna lausn í kjaramálum áður en frestur til að segja upp kjarasamning...
Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli
📅 01.10.2026 👁️ 0
Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli
Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli Keflavíkurflugvöllur Mynd: Stjórnarráðið Fimm erlendir ríkisborgarar hafa verið...
Fleiri hótelherbergi en færri gistinætur
📅 01.10.2026 👁️ 2
Fleiri hótelherbergi en færri gistinætur
Fleiri hótelherbergi en færri gistinætur Fram­boð hót­el­her­bergja jókst um 1,7 pró­sent í ág­úst en gistinótt­um á hót­el­um fækk­aði um 2,5 pró­sen...
Ivan Toney denies Soho nightclub assault
📅 01.10.2026 👁️ 2
Ivan Toney denies Soho nightclub assault
England striker Ivan Toney pleads not guilty to assaulting a man at a Soho nightclub last year.
Musk snýr aftur í formlegt ráðgjafarhlutverk hjá Trump
📅 01.10.2026 👁️ 2
Musk snýr aftur í formlegt ráðgjafarhlutverk hjá Trump
Musk snýr aftur í formlegt ráðgjafarhlutverk hjá Trump Varn­ar­mála­ráðu­neyt­ið seg­ir Elon Musk stýra Proj­ect Mer­idi­an ásamt Pal­mer Luckey og Ne...
Esther Rantzen surprises Nicholas Winton with children he saved
📅 01.10.2026 👁️ 0
Esther Rantzen surprises Nicholas Winton with children he saved
One of her most memorable career moments came during one particular episode in 1988 - the footage of which has gone viral several times over in recent...
Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal
📅 01.10.2026 👁️ 2
Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal
Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal Laugardalur Mynd: Víkingur Samnemendur unglings í Laugardal bundu hann og skildu eftir í kja...
„Það er að verða fólki ofviða að kaupa sér íbúð í Reykjavík“
📅 01.10.2026 👁️ 4
„Það er að verða fólki ofviða að kaupa sér íbúð í Reykjavík“
„Það er að verða fólki ofviða að kaupa sér íbúð í Reykjavík,“ segir Ari Edwald, borgarfulltrúi Miðflokksins, í samtali við Morgunblaðið í dag. Ari hef...
Pétur gagnrýnir milljónakaup í borgarstjórnarsalinn: „Hér fær kerfið meira og hverfin minna“
📅 01.10.2026 👁️ 4
Pétur gagnrýnir milljónakaup í borgarstjórnarsalinn: „Hér fær kerfið meira og hverfin minna“
Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, gagnrýnir meirihlutann í borginni fyrir að kaupa stóla og skjái í borgarstjórnarsalinn á sam...
Ný­sköpun frá Icewear fyrir ís­lenskt veður­far - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 4
Ný­sköpun frá Icewear fyrir ís­lenskt veður­far - Vísir
„Íslenska ullin hefur varið kindurnar okkar fyrir veðri í meira en þúsund ár. Ullin er tvískipt: mjúka þelið fangar loft og heldur hita, á meðan togið...
„Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 3
„Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ - Vísir
Helena Líndal, forstöðumaður eitrunarmiðstöðvar Landspítalans, ræddi málin í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Töluverð aukning verður alltaf á símtölum í ...
Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi
📅 01.10.2026 👁️ 2
Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi
Þverárfellsvegur lokaðist fyrir allri umferð rétt fyrir ofan Sauðárkrók, til móts við bæinn Skarð, þegar flutningabíll valt á veginum. Bíllinn og vagn...