Einn er látinn og talið er að um fimmtán sé saknað eftir að skyndiflóð féll í Miklagljúfursþjóðgarðinum í dag. Skyndiflóðið fór af stað um klukkan hálf þrjú að staðartíma í Bright Angel-gljúfrinu og Phantom Ranch.
Þjóðgarðurinn hefur biðlað til almennings um upplýsingar um göngufólk sem gæti hafa verið á svæðinu þegar flóðið féll, en ekki liggur fyrir hvort göngufólk hafi lent í flóðinu.
Yfirvöld í Arizona og starfsfólk þjóðgarðsins vinna að því að rekja ferðir fólks á svæðinu og rýmingar og viðbragðsaðgerðir standa yfir. 62 hafa verið fluttir frá svæðinu og til stendur að flytja fleiri á brott. Ekki hefur verið greint frá slysum á fólki.
Miklagljúfursþjóðgarðurinn er fjórði mest heimsótti þjóðgarður í Bandaríkjunum, með tæpa 4,5 milljón gesta á síðasta ári.
Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um fjölda látinna og þeirra sem saknað er.