Einn var handtekinn í byrjun síðustu viku vegna umfangsmikillar kannabisræktunar í kjallara húss í Króksfjarðarnesi. Þetta kemur fram í Facebook-færslu lögreglunnar á Vestfjörðum.
Lögreglan lagði hald á fjölmargar kannabisplöntur og mikið af búnaði til ræktunar.
Maðurin var í framhaldinu úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald.
Lögreglan á Vestfjörðum naut aðstoðar lögreglunnar á Vesturlandi og tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við aðgerðina.
DV greindi fyrst frá lögregluaðgerð í Króksfjarðarnesi.
Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vestfjörðum, segir í samtali við fréttastofu RÚV að maðurinn sem var handtekinn eigi brotaferil að baki.
Lögreglan hafi strax farið á vettvang þegar grunur vaknaði um ræktunina í byrjun síðustu viku og að fleiri en einn séu grunaðir í málinu.