Lögreglu barst einnig tilkynning um innbrot og þjófnað í heimahúsi í Mosfellsbæ og er það mál í rannsókn. Þá var tilkynnt um aftanákeyrslu í póstnúmerinu 108.
Vaktin virðist annars hafa verið með rólegra móti en 38 mál voru skráð í kerfi lögreglu og enginn gisti fangageymslur í morgunsárið.
Nokkrir voru stöðvaðir í umferðinni, meðal annars fyrir akstur undir áhrifum og akstur á móti rauðu ljósi.