Ég veit hvernig Miðflokksmönnum líður
Fyrsta verk nýrrar borgarstjórnar Reykjavíkur var að breyta fánareglum.
Miðflokksmenn geta loks sofið vært á nóttunni. Fyrsta verk nýrrar borgarstjórnar Reykjavíkur var að breyta fánareglum. Aðeins íslenski fáninn mun nú að jafnaði blakta við hún fyrir utan Ráðhúsið.
Ráðstöfunin er stórsigur í langri baráttu Miðflokksins gegn tilteknum fánum. Sigur er þó ekki alltaf jafnsætur og maður ímyndaði sér í hita leiksins.
Upp á líf og dauða
Ég veit hvernig Miðflokksmönnum líður.
Hér í Norður-London, þar sem ég bý, var nýverið háð barátta, sem stundum virtist upp á líf og dauða. Síðustu vikur valt hamingja íbúa Highbury-hverfisins á frammistöðu fótboltaliðsins Arsenal í ensku úrvalsdeildinni.
Ég hef ekki áhuga á fótboltaíþróttinni sem slíkri. Svo alltumlykjandi er hins vegar stemningin meðal þeirra sem búa í nágrenni við leikvang liðsins að ekki einu sinni fúlasti antí-sportisti stenst mátið að kaupa sér fótboltatreyju.
Með von í hjarta en öndina í hálsinum fylgdust íbúar Highbury með síðustu leikjum deildarinnar, þyrstir í sigur en ávallt hársbreidd frá brostnum draumum.
Fagnaðarlætin sem brutust út þegar liðið tryggði sér titilinn fangaði mannlega gleði í sinni einlægustu mynd. Fólk þusti út á götur. Það hló og grét. Ókunnugir föðmuðust eins og gamlir vinir.
Dögum saman ríkti hátíðarstemning í Highbury þar sem flugeldum var skotið upp og fótboltasöngur ómaði fram eftir nóttu.
Hápunkti var náð með skrúðgöngu síðastliðinn sunnudag. Ein milljón Arsenal-aðdáenda myndaði heiðursvörð þar sem liðinu var ekið á tveggja hæða opnum strætisvögnum um hverfið.
Sigurinn var okkar eftir tuttugu og tveggja ára bið.
En svo reis nýr dagur.
Handan sigursins
Þar sem ég gekk með börnin í skólann morguninn eftir skrúðgönguna blöstu við dreggjar gleðinnar: Göturnar voru þaktar rusli svo langt sem augað eygði.
„Af öllu því sem skiptir engu máli skiptir fótbolti mestu máli
Himinninn var þungbúinn. Vinnuvikan var fram undan. Veruleikinn beið, kaldranalegur, handan sigursins.
Arsenal-fánar héngu enn í öðrum hverjum glugga. En í gráma hversdagsleikans virtist árangurinn lítið annað en hjóm. Það var mánudagur. Óhreina tauið var enn í þvottakörfunni. Ég átti eftir að kaupa í matinn. Hitastig jarðar fór hækkandi. Stýrivextir líka. Fylgja þurfti börnunum í fótbolta, píanótíma og skátana. Eldhúsvaskurinn var stíflaður og það var aldrei neitt í sjónvarpinu.
Þótt takmarkinu væri náð hafði ekkert breyst.
Bleksvart tóm tilgangsleysisins
„Af öllu því sem skiptir engu máli skiptir fótbolti mestu máli,“ er þekkt tilvitnun sem eignuð er bæði páfa og fótboltaþjálfara.
Mannkynið hefur einstakt lag á að gefa merkingarlausum hégóma gildi. Að leikslokum blasir hins vegar við bleksvart tóm tilgangsleysisins.
Sigur Miðflokksins í baráttunni um fánana er jafn þýðingarlítill fyrir mannlega tilvist og sigur Arsenal í ensku úrvalsdeildinni. Það þarf samt að þvo þvottinn. Stýrivextir eru svimandi háir. Og enn er ekkert í sjónvarpinu.
Allt er óbreytt.
Til sefjunar múgnum
Sagt er að ekki þurfi annað en „brauð og leika“ til að halda almenningi í skefjum.
Barátta Miðflokksins gegn fánum er, eins og mörg stefnumála popúlista um heim allan, ekkert annað en slagur sem háður er til sefjunar múgnum.
Má ég þá heldur biðja um fótbolta.