Þrítugur eiginmaður leitaði til sambandsráðgjafa The Sun eftir að eiginkona hans lýsti yfir sterkri löngun til að láta ákveðna fantasíu rætast.
„Kærastan mín vill að við förum í trekant með samstarfsmanni hennar – en ég hef áhyggjur af því að standa mig ekki nógu vel,” segir maðurinn en eiginkona hans er einu ári yngri og hafa þau verið saman í fimm ár.
„Sambandið okkar er gott, en kynlífið hefur orðið svolítið „meh“ undanfarið. Þó hluti af mér sé spenntur fyrir hugmyndinni þá hef ég líka áhyggjur af því að ég muni sjá eftir þessu seinna meir. Hvað á ég að gera?“
Maðurinn útskýrir að eiginkonan hafi talað um að hún vildi krydda kynlífið og hefði fundið frábæra leið til þess – fá þriðja aðila í rúmið með þeim.
„Ég hélt fyrst að þetta væri bara fantasíutal, en eftir nokkur samtöl áttaði ég mig á því að henni er alvara – og hún er þegar búin að finna mann í hlutverkið. Hann er samstarfsmaður hennar; hár, sjálfsöruggur og mjög vel á sig kominn,“ segir maðurinn.
Hann kveðst ekki neita því að hugmyndin um trekant sé spennandi og það kveiki í honum að sjá konuna sína með öðrum manni.
„Þetta er eitthvað sem mig hefur alltaf langað að prófa, að minnsta kosti einu sinni, og ég held að ég myndi njóta þess á meðan það stæði yfir. En ég hef áhyggjur af því hvernig mér mun líða á eftir. Ég þekki sjálfan mig nógu vel til að vita að ég hef ákveðna tilhneigingu til að verða afbrýðisamur.“
Maðurinn segist hræddur um að „raunveruleikinn“ geti bankað á dyrnar seinna meir og hugsanlega muni hann ekki líta konuna sína sömu augum – jafnvel með þeim afleiðingum að hjónabandið fari í vaskinn.
„Ég finn nú þegar fyrir óöryggi vegna þess að hún hefur gefið í skyn að henni líki betur við menn sem eru stærri að neðan en ég, og ég er nokkuð viss um að maðurinn sem hún er að tala um passi við þá lýsingu. Ætti ég að segja henni að halda þessari hugmynd sem fantasíu? Eða, í ljósi þess að hún sér þennan mann á hverjum degi í vinnunni, ef ég segi nei, er ég þá bara að ýta henni beint í fangið á honum?“
Ráðgjafinn svarar:
„Fantasía og raunveruleiki eru tveir mjög ólíkir hlutir. Þótt þér líki hugmyndin um trekant, þá ertu greinilega með miklar efasemdir um að taka þátt í slíku.
Þú veist að þú ert afbrýðisamur að eðlisfari og þessi maður er þegar farinn að láta þig finna fyrir óöryggi. Ef þú ert kvíðinn núna, ímyndaðu þér þá hvernig þér mun líða ef þú lætur verða af þessu.
Þú segir að þið eigið gott samband, svo vertu hreinskilinn við kærustuna þína.
Ef hún elskar þig mun hún ekki þrýsta á þig að gera eitthvað sem þú ert ekki sáttur við. Ræðið aðrar leiðir til að lífga upp á kynlífið án þess að blanda þriðja aðila inn í sambandið.”