Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært konu fyrir fjárdrátt fyrir að hafa dregið sér samtals 3,3 milljónir króna frá tveimur ólíkum aðilum vegna fyrirhugaðrar leigu á fasteign á Tenerife.
Þetta kemur fram í ákæru yfir konunni.
Ákæran er í tveimur liðum en í fyrri lið ákærunnar segir að konan hafi á tímabilinu 31. október 2018 til 16. apríl 2019 dregið sér samtals 2,4 milljónir íslenskra króna sem ákærða tók við frá annarri konu vegna fyrirhugaðrar leigu konunnar á fasteign á Tenerife.
Konan ætlaði að leigja út fasteignina frá 8. júní 2019 til 8. september sama ár. Fyrrgreind upphæð átti að ganga til innborgunar á leigunni en í ákærunni segir að ákærða hafi ekki staðið skil á afhendingu leiguhúsnæðisins og blandað fjármununum við sinn persónulega reikning þar sem hún nýtti fjármunina í eigin þágu.
Nýtti upphæðina í eigin þágu
Í seinni lið ákærunnar segir að konan hafi dregið sér samtals 930 þúsund krónur frá öðrum einstaklingi frá júlí 2018 til ágúst 2018.
Sá aðili hugðist leigja út fasteign á Tenerife frá júní 2019 til júlí sama ár samkvæmt samkomulagi við ákærðu en fyrrgreind fjárhæð átti að ganga til innborgunar á leigunni.
Í ákærunni segir að ákærða hafi ekki staðið skil á leigu húsnæðisins og blandað fjármununum við sinn persónulega reikning og nýtt í eigin þágu.
Málið er rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.