Risinn í Cerne Abbas í suðvesturhluta Englands fer ekki fram hjá neinum. Hann er 55 metra hár, nakinn og með 10 metra langan, stinnan lim.
Svokallaður „dónalegi maðurinn“, sem talinn er vera fornt frjósemistákn, þarf reglulega á þvotti og hreinsun að halda og hundruð sjálfboðaliða víðs vegar að hafa unnið hörðum höndum við að hreinsa hann vel.
„Yfirleitt framkvæmum við þessa vinnu á 10 ára fresti, en við tókum eftir því að hann var farinn að líta dauflega út og þurfti á athygli að halda,“ sagði Liz Flight hjá National Trust, góðgerðarsamtökum sem sinna verndun menningararfs.
Síðasta yfirhalning risans með stinna liminn var árið 2019 en Flight sagði að meiri vetrarrigningar væru að skola burt krítinni á meðan tíðari hitabylgjur hefðu flýtt fyrir vexti þörunga og illgresis, sem gerði útlínurnar óskýrari.
Uppruni risans í Cerne Abbas er enn óljós. National Trust telur líklegt að hann hafi verið skorinn út seint á engilsaxneska tímabilinu, á milli 700 og 1100 eftir Krist.


