Breski tónlistarmaðurinn Liam Payne skildi eftir sig gríðarlegan auð sem níu ára sonur hans er einkaerfingi að. Auðurinn varð opinber eftir að andlát Payne kom fyrir dómstól.Payne, sem var fyrrum meðlimur strákasveitarinnar One Direction, lést í nóvember árið 2024 eftir að hafa fallið af hótelsvölum á þriðju hæð í Buenos Aires í Argentínu. Payne, sem var 31 árs, hafði átt í erfiðleikum með vímuefnaneyslu og geðheilsu í nokkur ár. Hann var í Argentínu til að sækja tónleikaferð fyrrverandi hljómsveitarfélaga síns, Niall Horan.
Dómsskjöl opinbera gríðanlegan auð One Direction stjörnunnar